Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Unnarbraut 17

170 Seltjarnarnes

69.900.000 kr.

916.121 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2068645

Fasteignamat

68.750.000 kr.

Brunabótamat

38.750.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1967
svg
76,3 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 27. maí 2026 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Unnarbraut 17, 170 Seltjarnarnes, Íbúð merkt: 01 01 02. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 27. maí 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Lýsing

Heimili fasteignasala kynnir Unnarbraut 17. Falleg og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð í þríbýlishúsi á sunnanverðu Seltjarnarnesi. Íbúðin er á jarðhæð með sérinngangi og umhverfis húsið er snyrtilegur sameiginlegur garður. Íbúðin skiptist í forstofu, þvottahús/geymslu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, hol, baðherbergi.

Nánari lýsing:
Forstofa: er flísalögð og með fatahengi. Frá forstofu er gengið í þvottaherbergi. 
Þvottaherbergi: rúmgott herbergi með glugga. Stæði fyrir þvottavél og þurrkara. 
Eldhús: smekklegt og rúmgott með góðum borðkrók. Ljós innrétting með góðu skápaplássi, viðarborðplata. Eldavél. Tveir gluggar. Stæði fyrir uppþvottavél. Parket á gólfi. 
Stofa: með stórum glugga til suðurs, útsyni til sjávar. Parket á gólfi. 
Hol: opið og bjart og tengir öll rými íbúðarinnar, rúmgott með innbyggðum skáp. Parket á gólfi. 
Baðherbergi: flísalagt bæði gólf og veggir. walk-in sturta, upphengt salerni. Hvít skúffuinnrétting undir handlaug. Speglaskápur. 
Svefnherbergi I: rúmgott herbergi með góðum fataskáp. Parket á gólfi. 
Svefnherbergi II: rúmgott herbergi. Parket á gólfi. 

Endurbætur og viðhald hússins:
2021 Allir gluggar í íbúð endurnýjaðir. 
2024 Þakdúkur endurnýjaður.
2025 Tröppur að efri hæð múraðar og handrið galvaniserað og yfirfarið.
Endurbætur og viðhald íbúðar: 
2021 Endurnýjað á baðherbergi. Handlaug, blöndunartæki, skúffuskápur og speglaskápur.  Geymsluhillur og vinnuborð sett upp í þvottaherbergi/geymslu. Nýr fataskápur í svefnherbergi.

Virkilega falleg og vel skipulögð eign á fjölskylduvænum stað á Seltjarnarnesinu. Tilvalin fyrstu kaup. Stutt er í alla þjónustu s.s leikskóla, skóla og verslanir. Íbúðin er staðsett rétt við sjávarsíðuna. Eitt vinsælasta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins með fjöruna og fjölbreytt fuglalífið innan seilingar. Afbragðs göngu- og reiðhjólastígar meðfram strandlengjunni og Bakkatjörn og golfvöllur Nesklúbbsins í göngufæri!
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind fasteignasali sigridur.lind@heimili.is / 8994703.     


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

img
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Heimili fasteignasala
Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone
img

Sigríður Lind Eyglóardóttir

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
14. maí. 2021
39.850.000 kr.
48.000.000 kr.
76.3 m²
629.096 kr.
23. sep. 2016
27.550.000 kr.
33.500.000 kr.
76.3 m²
439.056 kr.
22. mar. 2013
20.250.000 kr.
24.000.000 kr.
76.3 m²
314.548 kr.
13. júl. 2007
17.230.000 kr.
20.800.000 kr.
80.5 m²
258.385 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone

Sigríður Lind Eyglóardóttir

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík