Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1953
270,3 m²
8 herb.
2 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sérinngangur
Lýsing
Borg fasteignasala kynnir í einkasölu: Einstaklega falleg og rúmgóð húseign að Ægisíðu 72 í Reykjavík sem í dag skiptist í tvær sjálfstæðar íbúðir á fyrstu hæð og í kjallara, hvor með sérinngangi. Um er að ræða stórglæsilega eign við eina virðulegustu og fallegustu götu Reykjavíkur, með óhindruðu útsýni til suðurs.
Nánari upplýsingar veita fasteignasalarnir
Gunnlaugur Þráinsson, löggiltur fasteignasali.
s. 844 6447 – gunnlaugur@fastborg.is eða
Úlfar Þór Davíðsson löggiltur fasteignasali í síma: 788-9030/ ulfar@fastborg.is
Samkvæmt skráningu hjá HMS er heildarstærð eignarinnar 270,3 m², sem skiptist þannig: Íbúð á fyrstu hæð 117,1 m², íbúð í kjallara 97,3 m², bílskúr 38,7 m², geymsla 6,5 m² og þvottahús 10,7 m².
Almenn lýsing
Húsið, sem er teiknað árið 1952 af Gunnari Ólafssyni arkitekt, hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina. Lóðin er snyrtileg með stóru hellulögðu bílaplani.
Húsið er tvíbýlishús og er hér um að ræða eignarhluta á fyrstu hæð og í kjallara, auk bílskúrs.
Íbúð á fyrstu hæð skiptist í forstofu, gang, tvö svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og þrjár samliggjandi stofur. Árið 2012 var hæðin endurnýjuð að innan í samvinnu við Rut Káradóttur innanhússarkitekt.
Íbúð í kjallara skiptist í forstofu, gang, tvö svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og stofu og er afhent tilbúin til innréttinga, án gólfefna og hurða.
Þvottahús og geymsla eru í kjallara. Geymsla er aðgengileg úr sameign, en þvottahúsið hefur aðgengi bæði úr sameign og beint frá kjallaraíbúð.
Bílskúrinn er 38,7 m² hátt til lofts og vítt til veggja, þar er heitt og kalt vatn.
Frárennslis- og klóaklagnir hússins voru endurnýjaðar á þessu ári ásamt neysluvatnslögnum í kjallaraíbúð.
Nánari lýsing á efri hæð
Forstofa: Komið er inn um sérinngang í flísalagða forstofu. Þaðan er einnig aðkoma niður í sameign.
Herbergi: Á vinstri hönd frá forstofu er svefnherbergi.
Gangur: Falleg tvöföld glerhurð skilur að anddyri og gang.
Stofur: Þrjár samliggjandi og glæsilegar stofur með bogadregnum glugga í setstofu, aukinni lofthæð, skrautlistum og stórfenglegu útsýni.
Setstofan er í miðjunni, bókastofan til vinstri og borðstofan til hægri.
Frá bókastofu er útgengt á svalir með fallegum stiga niður í garð.
Hjónaherbergi: Innst á gangi er rúmgott hjónaherbergi með sérsmíðuðum hvítlökkuðum skápum. Svalir eru út af hjónaherbergi.
Eldhús: Hvítlökkuð sérsmíðuð innrétting með steini á borðplötum. Gólf er flísalagt og búrskápur í innréttingu.
Baðherbergi: Flísalagt gólf og veggir með ljósgráum og hvítum flísum. Innrétting með skáp fyrir þvottavél og þurrkara, baðkar með sturtu.
Gólfefni: Ráðandi gólfefni á hæðinni er ljóst eikarparket.
Nánari lýsing á íbúð í kjallara
Björt íbúð með með 2,8 metra lofthæð.
Gengið er inn um sérinngang að aftanverðu inn í anddyri.
Herbergi: Rúmgott herbergi á vinstri hönd.
Baðherbergi: Tilbúið til flísalagnar og innréttinga.
Eldhús: Tilbúið til innréttinga, opið er á milli eldhúss og stofu.
Stofa: Rúmgóð með fallegum gluggum til suðurs.
Herbergi: Innst á gangi er annað herbergi.
Annað: Íbúðin afhendist tilbúin til innréttinga, án gólfefna og hurða, vegna nýlegrar endurnýjunar frárennslis-, klóak- og neysluvatnslagna. Við frágang var íbúðin heilflotuð, máluð og raflagnaefni endurnýjað.
Aðgengi er frá kjallaraíbúð í sameign hússins og þaðan upp á fyrstu hæð og beint aðgengi í þvottahús.
Umhverfi og staðsetning
Ægisíða í Vesturbæ Reykjavíkur er ein virðulegasta og eftirsóttasta gata borgarinnar, með óhindruðu sjávarútsýni og röð fallegra húsa.
Frábær staðsetning við strandlengjuna þar sem útivistarsvæði og gönguleiðir við sjóinn eru í næsta nágrenni.
Helsta þjónusta er í stuttu göngufæri.
Hér er um að ræða einstaka eign á eftirsóttum stað með óhindruðu og tilkomumiklu útsýni.

s. 844 6447 – gunnlaugur@fastborg.is
Úlfar Þór Davíðsson, löggiltur fasteignasali
s. 788-9030 - ulfar@fastborg.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. jún. 2012
55.450.000 kr.
78.000.000 kr.
225.8 m²
345.438 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026