Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Pálmason
Vista
einbýlishús

Hávegur 58

580 Siglufjörður

82.900.000 kr.

352.466 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2130356

Fasteignamat

63.050.000 kr.

Brunabótamat

108.000.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1977
svg
235,2 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

Fasteignamiðlun kynnir eignina Hávegur 58, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0356 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Hávegur 58 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0356, birt stærð 235.2 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@fasteignamidlun.is.


Um er að ræða mikið endurnýjað einbýlishús í hæðum Siglufjarðar með frábæru útsýni. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, samliggjandi stofu og borðstofu, 5 svefnherbergjum, baðherbergi, gestasalerni, þvottahúsi, geymslu og bílskúr. Stór timburpallur er bak við eignina með skjólveggjum. Steypt bílaplan er með snjóbræðslu. Eignin stendur í enda botnlangagötu og efst í byggð Siglufjarðar. 

Búið er að endurnýja 
-Gler og hluta af gluggum í eigninni. 
-Þak og rennur. 
-Rafmagn efri hæðar og hluta neðri hæðar. 
-Neysluvatnslagnir og hluta af ofnalögnum/ofna.
-Gólfefni, hurðar, lofta- og veggjaklæðningar.
-Bílastæði steypt með snjóbræðslu og lýsingu. 
-Geymsluloft útbúið með aðgang frá palli. 
-Timburpallur með skjólveggjum og  rafmagn lagt fyrir heitan pott. 

Neðri hæð:
Forstofa: er parketlögð með ágætis fatahengi. 
Svefnherbergi: eru tvö á neðri hæð með parket á gólfi. 
Gestasalerni: er með flotuðu gólfi, vask og salerni. Opnanlegur gluggi er til staðar. 
Þvottahús: er mjög rúmgott með skápaplássi, vask og sér inngangi. 
Geymsla: er ca 27m2 að stærð og er óskráð rými vegna lofthæðar. 

Efri hæð: 
Eldhús: er með hvítum innréttingum og svartri borðplötu. Búrskápur er við enda, innbyggðir 2 ofnar, helluborð og stór vaskur. Eyja er með skúffuplássi og sætum við enda. 
Stofa-borðstofa-sjónvarpstofa: liggja saman í opnu rými með eldhúsi. Mikið og fallegt útsýni er úr stórum gluggum í rýminu. 
Svefnherbergi: eru 3 á efri hæðinni öll með parket á gólfi. Eitt herbergjanna er notað sem fataherbergi í dag og er því fyllt skápum með speglahurðum.
Baðherbergi: er með flísum á gólfi og veggjum, innréttingu, baðkari, og salerni. 
Pallur: útgengt er út á timburpall með skjólveggjum á efri hæð. Á palli er tengi fyrir rafmagnspott og kaldan pott. Einnig er afgirt hundasvæði á lóð með hliði á tveimur stöðum.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Fasteignamiðlun

Fasteignamiðlun

Grandagarði 5, 101 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
26. júl. 2018
28.450.000 kr.
35.000.000 kr.
235.2 m²
148.810 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignamiðlun

Fasteignamiðlun

Grandagarði 5, 101 Reykjavík