Lýsing
Um er að ræða fallega og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 4 hæð í nýju lyftuhúsi í miðbæ Mosfellsbæjar. Íbúðinni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu. Birt stærð eignar er 82.6 fm, þar af er íbúðahluti 74.9 fm og geymsla 7,7 fm.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX
Íbúðin skiptist í anddyri, í alrými er stofa og eldhús, 2 svefnherbergi, baðherbergi / þvottaherbergi, geymslu og stæði í bílageymslu.
Nánari lýsing:
Anddyri: Með hvítum tvöföldum fataskápum, parket á gólfi.
Stofa: Í alrými, björt og rúmgóð, útgengi út á norðaustur svalir (5.4 fm) með tréflísum, parket á gólfi.
Eldhús: Í alrými, hvít innrétting, innbyggður AEG ísskápur / frystir og uppþvottavél, AEG bakaraofn, spanhelluborð, vifta, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott, hvítir fataskápar, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Rúmgott, hvítir fataskápar, parket á gólfi.
Baðherbergi / þvottaherbergi: Með hvítri innréttingu og speglaskáp, sturta, upphengt salerni, handklæðaofn, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísar á gólfi, í sturtu og vegg út frá sturtu.
Geymsla: Í sameign er 7.7 fm geymsla (merkt 0005).
Innréttingar: Allar innréttingar eru frá Parka af gerðinni Taumona.
Bílageymsla: Eigninni fylgir stæði í bílageymslu (merkt B420). Lagnir fyrir rafhleðslustöð komnar að stæði.
Sameign: Snyrtileg sameign með sameiginlegri vagna- og hjólageymslu.
Húsið: Bjarkarholt 17 - 19 í Mosfellsbæ, tvö fimm hæða lyftuhús með alls 58 íbúðum auk bílakjallara fyrir 32 bíla. Einn stigagangur með 29 íbúðum er í hvoru húsi.
Lóðin: Lóðin Bjarkarholt 17-29 er 10919 fm. Bjarkarholti 17 og 19 fylgja samtals 62 stæði sem skipast í 30 bílastæði á lóð (austan við Bjarkarholt 17) og 32 stæði í bílageymslu, þar af eru 4 sérmerkt fyrir hreyfihamlaða.
Staðsetning: Smellið hér.
Bjarkarholt 17-19 er á frábærum stað í miðbæ Mosfellsbæjar. Stutt í næstu stoppistöð fyrir strætisvagn er aðeins í 120 metra göngufæri. Fallegt útsýni er til fjalla, Esjan til norðurs, Akrafjall og Snæfellsjökull til vesturs, nær eru Úlfarsfell, Lágafell, Reykjafell og Helgafell. Stutt er í íþróttasvæði, líkamsrækt, sundlaugar, útivistarsvæði, golf- og folfvelli. Helsta þjónusta, matvöruverslanir, veitingastaðir og skyndibitastaðir eru í göngufæri. Leikskólar, grunnskólar og Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ og fleiri leiksvæði eru í nágrenninu.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala, í síma 893 3276 eða holmar@helgafellfasteignasala.is.
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.