Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
sumarhús

Eyrar 11 og 13

276 Mosfellsbær

49.900.000 kr.

682.627 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2086367

Fasteignamat

44.050.000 kr.

Brunabótamat

42.350.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2006
svg
73,1 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sérinngangur
svg
Laus strax

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Sumarhús á fallegum stað við Eyrar 13 í Eilífsdal í Kjós. Eignin stendur á vel staðsettri um 3.346,7 m2 leigulóð sem er skógi vaxin. Með eigninni selst 5.188,4 m2 sumarhúsalóð (leigulóð) við Eyrar 11, fasteignanúmar F2331921, sem stendur við hlið eignarinnar. Nýir lóðarleigusamningar til 25 ára undirritaðir í lok árs 2025. Sumarhúsið er skráð 73,1 m2, þar af frístundahús 72,4 m2 og pallur 0,7 m2. Auk þess er geymsluskúr á timburverönd við húsið. Húsið skiptist í forstofu/hol, eldhús, stofu/borðstofu, tvö svefnherbergi, svefnloft og baðherbergi. Innbú fylgir með í kaupunum. Stór og góð timburverönd er við húsið. Rafmagnskynding og hitakútur fyrir neysluvatn. Hitaveita komin að lóðarmörkum. Símahlið til að komast inn á svæðið. Frábær staðsetning í aðeins um 30 mínútna akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Getur verið laus við kaupsamning.

** Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent **

Nánari lýsing:
Forstofa/hol er með parketi á gólfi, fataskáp og fatahengi. Úr forstofu/holi er útgengt á timburverönd.
Eldhús er með parketi á gólfi og fallegri hvítri innréttingu með bakaraofni, helluborði, viftu og uppþvottavél. Ísskápur stendur við hlið innréttingar. 
Stofa/borðstofa er opin við eldhús, björt og falleg með parketi á gólfi. Útgengt er á timburverönd úr stofu.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 2 er rúmgott með parketi á gólfi, tvöföldu rúmi og koju.
Svefnloft er ofan við svefnherbergi 2 og er gengið upp um stiga úr eldhúsi/stofu. Rýmið er opið við stofu en lokað af með grindverki.
Baðherbergið er með parketi á gólfi, innréttingu með handlaug, vegghengdu salerni og sturtuklefa. Tveir opnanlegir gluggar eru í rýminu. Hitakútur er staðsettur á lofti fyrir ofan baðherbergi en aðgengi er úr svefnherbergi 1.
Geymsluskúr stendur á timburverönd við húsið, ca. 5,6 m2. Rafmagn er í skúrnum.

Endurbætur samkvæmt seljanda: Árið 2006/2007 var viðbygging byggð þar sem nú er svefnherbergi 1 og baðherbergi. Eldhús var þá fært þar sem það er nú og neysluvatnslagnir endurnýjaðar.

Gjöld: Fasteignagjöld 2026 eru samtals 185.100 kr. fyrir báðar eignir. Brunatrygging 2026-2027 er 61.040 kr. Lóðarleiga 2025-2026 er 170.000 fyrir hvora lóð eða samtals 340.000 kr. Félagsgjald í sumarhúsafélag Valshamars er 50.000 kr. fyrir hvora lóð, samtals 100.000 kr. fyrir árið.

Verð kr. 49.900.000,- 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Steingrímur Benediktsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Steingrímur Benediktsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Steingrímur Benediktsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ