Lýsing
Gott og vel staðsett 5-6 herbergja, 180 fm skrifstofuhúsnæði / íbúðarhúsnæði á annarri hæð við Dugguvog 50, 104 Reykjavik. Hefur verið nýtt sem íbúðarhúsnæði með vinnuaðstöðu.
Komið er inn í rúmgóð forstofa með innréttingu og vask. Það er gengið inn gang með tveimur rúmgóðum herbergjum, baðherbergi með sturtu og geymslu. Það er gengið í stórt aðalrýmið með stofu/borðstofu, eldhúsi, rúmgóðu baðherbergi með baði, sturtu, tengi fyrir þvottavél og þrjú góð herbergi. Stigi er frá alrými upp á milliloft loft sem skipt er upp í opið rými og tvö herbergi. Á gólfum er parket, dúkur og flísar.
Leiguverð er kr. 350.000 á mánuði. Krafist er tveggja mánaða tryggingu. Leigjandi greiðir rafmagn og hita. Leigutími 1 ár og möguleiki er á framlengingu. Afhending getur orðið við undirritun leigusamnings.
Snyrtilegrar og góðrar umgengni er krafist.
Nánari upplýsingar veitir Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s. 893-3276 eða með tölvupósti: holmar@helgafellfasteignasala.is.
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.