Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Böðvar Þ. Eggertsson
Vista
atvinnuhúsnæði

Borgahella 9A

221 Hafnarfjörður

139.000.000 kr.

403.952 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2330005

Fasteignamat

5.990.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2025
svg
344,1 m²
svg
0 herb.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Miklaborg kynnir: Atvinnuhúsnæði við Borgahellu 9 Hafnafirði. Um er að ræða staðsteypt atvinnuhúsnæði fyrir léttan iðnað. Eignin er skráð nr 0101 og 0102 sem er 344,1fm á stærð og á tveimur hæðum. Neðri hæðin er skráð 171,9 fm og lofthæð þar er 4,5m. Á neðri hæð eru tvær innkeyrsluhurðir með 4,2m hæð. Efri hæðin 172,2 fm og lofthæð þar er 2,4-4,5m, útgengt á svalir frá efri hæð. 40 fm sérafnotaflötur undir bílastæði fyrir framan hús.

Tilbúin til afhendingar, þó verður bílaplan malbikað sumarið 2026.
Nánari upplýsingar veitir:
Steinn Andri Viðarsson, löggiltur fasteignasali í síma 775-1477 eða steinn@miklaborg.is

Ólafur Finnbogason, löggiltur fasteignasali í síma 822-2307 eða olafur@miklaborg.is

Húsnæðið selt á byggingarstigi 3. Eigninni skilast í samræmi við skilalýsingu seljanda. Lóð skilast fullkláruð. Olíuskilja er á niðurfalli á neðri hæð.

Möguleiki er á að innrétta tvær stúdíóíbúðir á efri hæð húsins og getur seljandi séð um að standsetja þær.

Einnig er eigandi tilbúinn að leigja húsnæðið.

Frágangur innanhúss:
Allir veggir eru slípaðir, grunnaðir og málaðir. Einungis léttir milliveggir á baðherberginu á 1. hæð og epoxy á gólfi. Gólfið á 1. hæð er vélslípað og rykbundið en gólfin á 2. hæð eru flotuð. Steypt loft er slípað, grunnað og málað. Á 2. hæð eru stálbitar og sperrur, búið er að ganga frá rakavarnarlaginu en ekki taka loftið niður né klæða. Lýsingin verður fest í sperrur, reiknað er með að kaupandi gangi endanlega frá lofti á 2. hæð. Eldvarnar hurð frá Glófaxa á brunagangi. Aðrar innihurðir fylgja ekki. Bílskúrshurðir frá Vögnum og Þjónustu. Baðherbergi á 1. hæð er búið að koma fyrir upphengdu klósetti og vaski. Eignin skilast með lagnagrind sem auðvelt er að bæta við. Lagnir eru samkvæmt teikningu. Einn iðnaðarblásari er í hverju rými til upphitunar. Reiknað er með ofnum á efri hæð sem kaupandi sér um að koma fyrir. Iðnaðarlampar á efri og neðri hæð ásamt neyðarlýsingu. Kubbaljós fyrir framan hvert bil. Kúpull á baðherbergi niðri. Loftræsting á baðherbergi niðri. Ásamt túðu á efri hæð. Rafmagnstafla er tilbúin í hverju bili. Ljós og bílskúrhurðaropnari verður tengdur. Eignin skilast fullfrágengin að utan sem og lóð verður malbikkuð með niðurföllum og olíuskilja í niðurföllum.. Húsið er staðsteypt og einangrað að utan með smábáru. Gluggar og hurðir eru úr álklæddu timbri.
Nánari upplýsingar veitir:
Steinn Andri Viðarsson, löggiltur fasteignasali í síma 775-1477 eða steinn@miklaborg.is

Ólafur Finnbogason, löggiltur fasteignasali í síma 822-2307 eða olafur@miklaborg.is

Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík