Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Heiðar Pálsson
Helen Sigurðardóttir
Hrafnkell Pálmarsson
Ingibjörg Reynisdóttir
Vista
hæð

Andarhvarf 9

203 Kópavogur

124.900.000 kr.

779.164 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2270910

Fasteignamat

120.000.000 kr.

Brunabótamat

78.650.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2005
svg
160,3 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Pálsson Fasteignasala kynnir:

-Bílskúr og einkabílastæði
-Jarðhæð með sérinngangi
-Skjólgóður afgirtur sólpallur
-Þrjú rúmgóð svefnherbergi


Íbúðin er á neðri hæð í tvíbýli, skráð 134,3 fm samkvæmt HMS auk 26,0 fm bílskúrs og er eignin því samtals 160,3 fm.
Skjólgóður sólpallur er að framanverðu og á suðurhlið hússins.
Úr stofu, eldhúsi og frá sólpalli er útsýni yfir Elliðavatn og upp til Bláfjalla.
Þrjú svefnherbergi, öll með loftháum skápum.
Þvottahús og rúmgóð geymsla í sér rýmum.
Baðherbergi er með baðkari og sturtu, auk þess er gestasalerni inn af forstofu.
Eikarparket er á gólfum í stofu og herbergjum, flísar í votrýmum, eldhúsi og forstofu.

Húsið er steinað og viðhaldlétt og nýlega sílanborið.
Gluggar málaðir nýlega og botnstykkin úr viðhaldsléttu áli.

Bílskúr með rafmagnsopnara er í bílskúrslengju með einkastæði fyrir framan og einnig sameiginleg bílastæði á lóð.

Stutt að sækja í íþróttir og útivist með góðum gönguleiðum.
Útivistarparadís á borð við Elliðavatn, Guðmundarlund og Víðidal í næsta nágrenni.
Matvöruverslun og önnur þjónusta skammt undan.

Nánari upplýsingar veitir:
Ævar Jóhanns Lgf. s: 861-8827 eða aj@palssonfasteignasala.is

Nánari lýsing:
Gengið er inn í flísalagða forstofu með góðu skápaplássi.
Inn af forstofu er flísalagt gestasalerni með vask, upphengdu salerni og glugga með opnanlegu fagi.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í einu flæði með skilrúmsvegg sem klæddur hefur verið með hljóðvistunarplötum.
Eldhús er flísalagt og innrétting er lökkuð svört með innfelldum ísskáp og uppþvottavél. Span helluborð og bakaraofn í vinnuhæð. Steinborðplata er á innréttingunni.
Stofan er stór og björt og rúmar vel borðstofu og betri stofu eða sjónvarpsaðstöðu. Úr henni er útgengt út á sólríka timburverönd.
Rúmgóð geymsla er innan íbúðar.
Svefnherbergin eru þrjú.
Hjónaherbergi er parketlagt og stórt með skápavegg.
Bæði barna/gestaherbergin eru parketlögð, rúmgóð með loftháum skápum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, útbúið innfelldum skáp, baðkari og walk in sturtu og glugga með opnanlegu fagi. Vaskinnrétting með skúffum, handklæðaofn og upphengt salerni.
Þvottahús er flísalagt, rúmgott með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, vaski og glugga með opnanlegu fagi.
Bílskúr er í bílskúrslengju, epoxy á gólfi með rafmagnsopnara.
Sameiginleg lóð.

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. okt. 2020
61.700.000 kr.
76.000.000 kr.
160.3 m²
474.111 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík