Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Böðvar Þ. Eggertsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1945
svg
96,9 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Miklaborg kynnir: Bjarta og fallega 4ra herbergja endaíbúð með aukinni lofthæð og glugga á þrjá vegu, á 2. hæð við Leifsgötu í Reykjavík. Íbúðin skiptist í forstofu, hol, þrjú svefnherbergi, fataherb./geymslu, stofu, eldhús og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Sameiginleg geymsla og þvottahús á jarðhæð auk sameiginlegt geymslurýmis í risi.

Allar nánari upplýsingar veitir Kristín Pétursdóttir, löggiltur fasteignasali, s.824-1965, kristin@miklaborg.is

Nánari lýsing: Komið er inn á parketlagt hol með skápum. Barnaherbergin eru tvö, bæði með parketi. Hjónaherbergið er bjart og rúmgott með fataskáp og parketi. Rúmgott eldhús er með nýlegri innréttingu, eldhústækjum með stáláferð, uppþvottavél getur fylgt. Viðarborðplata er á innréttingu. Stofa og eldhús eru samliggjandi en úr stofunni er gengið út á suðvestursvalir sem snúa út í sameiginlegan bakgarð. Parket er bæði á eldhúsi og stofu. Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, vegghengdu salerni, rúmgóðri sturtu og glugga. Á baðherberginu er tengt fyrir þvottavél og þurrkara. Geymsla er á jarðhæð, samnýtt með íbúðum jarðhæðar. Auk þess er geymslurými í rislofti sem er samnýtt með einni annarri íbúð en er ekki tilgreint í eignaskiptasamningi. Aukin lofthæð er í allri íbúðinni, 2.70 cm. og fallegir vegglistar og rósettur setja mikinn svip á eignina.

Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð á undanförnum árum, að sögn seljanda: Skipt hefur verið um glugga og gler í allri íbúðinni og eldhús og baðherbergi endurnýjuð sem og ofnar og gólfefni. Sömuleiðis raflagnir og tafla fyrir íbúðina ásamt rafmagnstöflu fyrir húsið og rafmagnsinntak. Nýtt inntak fyrir vatn og ljósleiðara. Sameign er nýmáluð.

Falleg eign við rólega og mjög vinsæla einstefnugötu í miðbæum. Stutt er í alla helstu þjónustu, sund ofl.

Allar nánari upplýsingar veitir: Kristín Pétursdóttir, löggiltur fasteignasali, s:824-1965, kristin@miklaborg.is

Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
29. des. 2020
51.450.000 kr.
55.000.000 kr.
96.9 m²
567.595 kr.
17. sep. 2015
32.050.000 kr.
35.000.000 kr.
96.9 m²
361.197 kr.
9. júl. 2008
21.430.000 kr.
24.200.000 kr.
96.9 m²
249.742 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík