Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þórólfsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Jason Kristinn Ólafsson
Sverrir Pálmason
Upplýsingar
svg
Byggt 1955
svg
270,3 m²
svg
8 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

**Bókið einkasýningu hjá Brynjari í síma 896-1168 eða brynjar@betristofan.is**

Virkilega notalegt 270,3m² einbýli á þremur hæðum. Fimm svefnherbergi og rúmgóðar stofur. Mögulegt að hafa aukaíbúð með sérinngang í kjallara. Gott hús á vinsælum stað í Smáíbúðahverfinu. Sólríkur garður til suðurs með sólpalli í hluta garðs. 

Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 270,3m², flatarmál íbúðarrýmis er 230,4m² og flatarmál bílskúrs er 39,9m². 
Húsið skiptist í þrjár stofur, eldhús, snyrtingu, fimm herbergi, baðherbergi, þvottahús og sérstæðan bílskúr.

Nánari lýsing:
Miðhæð
Forstofa með flísum á gólfi.
Stofa 1 er rúmgóð með fallegu parketi lagt í síldarbeinsmunstur.
Stofa 2 er einnig rúmgóð og björt með stórum gluggum til suðurs, fallegt parket lagt í síldarbeinsmunstur. 
Eldhús er rúmgott, hvít innrétting, flísar á milli efri og neðri skápa, tengi fyrir uppþvottavél, gluggar á tvo vegu. Flísar á gólfi.
Snyrting innaf forstofugangi, flísar á gólfi og gluggi.

Efri hæð. Gengið upp teppalagðan stiga.
Hjónaherbergi er rúmgott og með innbyggðum fataskápum, dúkur á gólfi. Svalir til austurs út frá herbergi.
Tvö minni herbergi með parketi á gólfum.
Baðherbergi með baðkari, flísar á gólfi og upp á veggi. Gluggi er á baðherberginu. 

Kjallari. Gengið niður teppalagaðan stiga. Sér inngangur er einnig í kjallarann.
Tvö svefnherbergi með innbyggðum fataskápum, dúkur á gólfi.
Stofurými með dúk á gólfi.
Eldhús lítill eldhúskrókur með efri og neðri skápum, helluborði og vask.
Snyrting undir stiga.
Þvottahús með flísum á gólfi og sturtuklefa. Innaf þvottahúsi er geymsa og inntaksrými.

Bílskúr er skráður 39,9m² og er hann við hliðina á húsinu. Hiti er í innkeyrslu og framan við húsið.

Húsinu hefur verið haldið við í gegnum tíðina og má þar nefna td nýja rafmagnstöflu og raflagnir, hluta af gleri og gluggum hefur verið endurnýjað, nýtt þakjárn á viðbygginguna og bílskúr, árið 2017 var húsið múrviðgert og málað að hluta.

Nánari uppl.

Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 896 1168 - brynjar@betristofan.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone