Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Eiríkur Svanur Sigfússon
Aron Freyr Eiríksson
Melkorka Guðmundsdóttir
Kristófer Fannar Guðmundsson
Svala Haraldsdóttir
Stefán Rafn Sigurmannsson
Arnór Daði Eiríksson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2007
svg
251,2 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
svg
Laus strax

Lýsing

Hlíðarás 47 – Glæsilegt einbýlishús með einstöku útsýni í Áslandi 3, Hafnarfirði

Um er að ræða glæsilegt og vel skipulagt einbýlishús á frábærum útsýnisstað í Áslandi 3 í Hafnarfirði. Eignin er skráð samtals 251,2 fm samkvæmt Fasteignaskrá Íslands, þar af er íbúðarhlutinn 206,4 fm og bílskúr 44,8 fm.

- Vandaðar innréttingar frá HTH í eldhúsi, þvottahúsi og svefnherbergjum
- Gegnheilt hnotuparket á gólfum
- Fallegar hnotuinnréttingar sem skapa hlýlegt og glæsilegt yfirbragð


Staðsetningin er afar góð, í rólegu og fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í fallegar gönguleiðir og náttúru. Leikskóli og grunnskóli eru í göngufæri.

Nánari lýsing
Neðri hæð:
Komið er inn í rúmgott og bjart anddyri með flísum á gólfi og góðum forstofuskápum. Þaðan er gengið inn á gang/hol, þar sem einnig er innan gengt í bílskúr eignarinnar.
Á hæðinni er rúmgott þvottaherbergi með góðri vinnuaðstöðu, plássi fyrir þvottavél og þurrkara, skolskál og góðum hirslum, auk sturtuaðstöðu.
Svefnherbergin á hæðinni eru þrjú:
- Tvö rúmgóð barnaherbergi með skápum
- Rúmgott hjónaherbergi með góðu fataherbergi
Frá gangi er útgengt út í garð eignarinnar. Einnig er snyrtilegt, flísalagt baðherbergi með innfelldum blöndunartækjum, tveimur vöskum og góðri innréttingu.
Efri hæð: Fallegur stigi tengir hæðirnar saman. Á efri hæðinni er glæsilegt og bjart alrými sem samanstendur af stofu (arinn), borðstofu og opnu eldhúsi, alls tæplega 65 fm samkvæmt teikningum.
Eldhúsið er rúmgott og vel útbúið með góðu skápaplássi og vinnuaðstöðu, stórri eyju með sæti fyrir allt að sex. Þar er einnig tvöfaldur ísskápur, bakarofn, innbyggð kaffivél og innbyggð uppþvottavél, öll tækin í eldhúsinu eru frá Miele.
Á hæðinni er einnig:
- Svefnherbergi
- Flísalagt baðherbergi með góðri sturtuaðstöðu
Útgengt er frá baðherberginu út í garð þar sem er verönd með heitum potti.

Bílskúr: Rúmgóður bílskúr með heitu og köldu vatni.

Lóð og garður: Lóðin er snyrtilega skipulögð með rúmgóðu bílaplani, stéttum og góðum sólpöllum sem snúa vel við sólu, heitur pottur er á sólpallinum.

Nánari upplýsingar veitir: 
Stefán Rafn Sigurmannsson s.655-7000 eða stefan@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is 

 

img
Stefán Rafn Sigurmannsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Ás fasteignasala
Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
Ás fasteignasala

Ás fasteignasala

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
phone
img

Stefán Rafn Sigurmannsson

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. maí. 2015
61.150.000 kr.
66.500.000 kr.
251.2 m²
264.729 kr.
23. jún. 2011
46.800.000 kr.
61.500.000 kr.
251.2 m²
244.825 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Ás fasteignasala

Ás fasteignasala

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
phone

Stefán Rafn Sigurmannsson

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði