Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Strandgata 23 -105

600 Akureyri

29.900.000 kr.

908.815 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2150961

Fasteignamat

22.450.000 kr.

Brunabótamat

17.850.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1906
svg
32,9 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur - 466-1600

Strandgata 23 íbúð 105 - Skemmtileg 1-2ja herbergja íbúð í grennd við miðbæ Akureyrar  - Stærð 32,9 m²

Eignin skiptist í forstofu, baðherbergi, svefnherbergi og alrými.

Forstofan er með flísum á gólfi og í holi er hvítur, sprautulakkaður fataskápur.
Baðherbergið er með dökkum flísum á gólfi og ljósum flísum á veggjum. Þar er ljós innrétting, stæði fyrir þvottavél og þurrkara ásamt sturtu, handklæðaofni og vegghengdu salerni.
Svefnherbergið er með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Alrýmið samanstendur af eldhúsi og stofu. Þar er harðparket á gólfum. Í eldhúsinu er snyrtileg ljós innrétting með efri og neðri skápum, flísum milli skápa og dökkri bekkplötu. Þar er einnig helluborð, ofn og stæði fyrir ísskáp.

Annað
- Eignin var mikið endurnýjuð í kringum 2020 og var bakhúsið t.a.m. klætt bárujárni að utan auk þess sem gler og gluggar voru endurnýjaðir.
- Skipt var um gólfefni og innréttingar um 2020.
- Gólfhiti er í íbúðinni.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
4. maí. 2023
16.100.000 kr.
21.000.000 kr.
32.9 m²
638.298 kr.
19. feb. 2020
10.300.000 kr.
8.200.000 kr.
32.9 m²
249.240 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone