Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
fjölbýlishús

Þverholt 31

270 Mosfellsbær

97.900.000 kr.

849.826 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2501357

Fasteignamat

87.000.000 kr.

Brunabótamat

78.520.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2019
svg
115,2 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
svg
Laus strax
Opið hús: 26. maí 2026 kl. 17:15 til 17:45

Lýsing

** Opið hús þriðjudaginn 26. maí frá kl. 17:15 til 17:45 - Þverholt 31, íbúð 404 - Laust strax - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, aðstoðarmaður fasteignasala - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 ** 

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir:  Falleg og björt 3-4ra herbergja íbúð með glæsilegu útsýni á 4. hæð (efstu) ásamt rúmgóðu bílastæði í bílageymslu í lyftuhúsi við Þverholt 31 í Mosfellsbæ. Svalir með svalalokun í suðurátt. Eignin er skráð 115,2 m2, þar af íbúð 105,1 m2 og geymsla 10,1 m2. Eignin er teiknuð með þremur svefnherbergjum en búið er að sameina tvö svefnherbergi í eitt. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Eignin skiptist í tvö svefnherbergi (þrjú á teikningu) forstofu, baðherbergi/þvottaherbergi, eldhús, stofu og borðstofu. Sérgeymsla í kjallara.
Fallegar innréttingar og gólfefni. Húsið er mjög vel staðsett rétt við miðbæ Mosfellsbæjar og því stutt í alla þjónustu. Íbúðin er með HTH innréttingum, eldhústækjum frá AEG, eikar harðparketi á gólfum frá Birgisson ehf. en baðherbergisgólf eru flísalögð, hreinlætis- og blöndunartæki eru frá Tengi ehf. 


Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskáp og parketi á gólfi. 
Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu björtu rými með parketi á gólfi. Falleg innrétting frá HTH. Í innréttingu er helluborð, vifta og blástursofn. Innbyggður ísskápur/frystiskápur og uppþvottavél. Skúffur eru í neðri hluta innréttingar með ljúflokun og skápar í efri hluta innréttingar. Úr rýminu er gengið út á svalir í suðurátt með svalalokun. 
Baðherbergi/þvottaherbergi er með flísalögðu gólfi og veggjum að hluta, vegghengdu salerni, sturtu, handklæðaofni, baðinnréttingu og innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Mikið skápapláss.
Svefnherbergi nr. 1 er mjög rúmgott með fataskápum og parketi á gólfi. Var teiknað sem tvö herbergi en var sameinað í eitt herbergi, hægt væri að breyta aftur í tvö herbergi þar sem það eru tvær hurðir inn í herbergið.
Svefnherbergi nr.2 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Sérgeymsla er er í kjallara. Skráð 10,1 m2.
Bílastæði í bílageymslu merkt B18 fylgir eigninni. Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl er í stæðinu.
Íbúðinni fylgir hlutdeild í sameiginlegri vagna- og hjólageymslu. 

Annað: Innfelld lýsing er að hluta til inni í íbúðum. Lýsing er hönnuð og teiknuð af Lumex. Húsið er hannað af Teiknistofu Ingimundar Sveinssonar. Byggingaraðili er Byggingafélagið Bakki ehf. Húsið er einangrað og klætt að utan með fyrsta flokks álklæðningu frá Áltak. Lóð er með gróðri og leiktækjum og er snjóbræðsla í öllum helstu gönguleiðum. Sorpgámar eru djúpgámar sem eru staðsettir miðsvæðis á lóðinni. 

Verð kr. 97.900.000



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
18. okt. 2019
34.050.000 kr.
61.000.000 kr.
115.2 m²
529.514 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ