Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þórólfsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Jason Kristinn Ólafsson
Sverrir Pálmason
Vista
fjölbýlishús

Snæland 2

108 Reykjavík

89.900.000 kr.

917.347 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2038121

Fasteignamat

79.050.000 kr.

Brunabótamat

50.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1973
svg
98 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 27. maí 2026 kl. 16:45 til 17:45

Opið hús: Snæland 2, 108 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 27. maí 2026 milli kl. 16:45 og kl. 17:45.

Lýsing

Hreiðar Levý, lögg. fasteignasali & Betri Stofan Fasteignasala kynna afar vel skipulagða, bjarta og mikið endurnýjaða 92fm, 4ja herbergja útsýnisíbúð með rúmgóðum suðursvölum á 2. hæð í litlu fjölbýlishúsi að Snælandi 2, 108 Reykjavík. Sérmerkt bílastæði fylgir eigninni á bílaplani fyrir utan hús. Eignin hefur verið að miklu leiti endurnýjuð á vandlegan og smekklegan máta á síðustu árum þar sem ma. eldhús var endurnýjað með nýrri innréttingu og tækjum árið 2021, ásamt parketi        . Staðsetning eignarinnar er virkilega góð í miðsvæðis í Reykjavíkur þaðan sem örstutt er í leikskóla, grunnskóla, íþróttasvæði Víkings og einstakt útivistarsvæði í Fossvogsdalnum.

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasla í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is

Húsið steinsteypt, byggt árið 1972 og teiknað af Kjartani Sveinssyni. Í stiganganginum eru 6 íbúðir, 2 á palli. Húsið hefur fengið gott viðhald hin síðustu ár þar sem ma. nýlega er búið að endurnýja þakjárn, rennur og niðurföll. Einnig hefur rafmagstafla fyrir húsið verið endurnýjuð, sameign máluð og sett ný gólfefni á sameignargólf. Í sameign er sérgeymsla, sameiginlegt þvottahús ásamt hjóla og vagnageymslu.

Eignin Snæland 2 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 203-8121, birt stærð 98.0 fm, þar af er sérgeymsla á jarðhæð / kjallara ca. 6fm. Geymsla er ekki skráð í skráða fermetratölu eignar í fasteignaskráningu.

Lóðin er fullfrágengin með tyrfðum flötum, trjábeðum og sérmerktum bílastæðum við suðurhlið hússins sem eru þó ekki skráð í eignaskiptayfirlýsingu eignarinnar. Einnig er tvöfalt rafhleðslustæði vestan við húsið sem er sameiginlegt með Snælandi 2-8.

Nánari lýsing:
Inngangur:
 Sameiginlegur, teppalagt stigahús, flísar á andyri og gangi í sameign.
Forstofa: Komið inn rúmgóða forstofu með fatahengi. Tengir saman flest rými íbúðar.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Upphengt salerni, bað með sturtu, innbyggð sturta með glerhurð, innrétting með spápum, vask og spegli fyrir ofan vask.
Eldhús: Endurnýjað árið 2021. Innrétting með góðu skápa- og vinnuplássi. Hálf opið og í góðri tengingu við stofu. Innbyggður ofn og örbylgjuofn í vinnuhæð, innfellt spanhelluborð í eldhúsbekk og eldhúsvaskur. Aðstaða fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu. 
Þvottaherbergi, inn af eldhúsi, með glugga. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaskur, upphengdur skápur og útdraganleg þvottagrind.
Stofa / borðstofa:, í einu rými, opin, rúmgóð og björt. Fallegir stórir gluggar til suðurs. Útgengt út á rúmgóðar suðursvalir.
Svalir: Afar rúmgóðar og sólríkar suðursvalir.
Herbergjagangur: Innaf forstofu. Gengið í svefnherbegin 3 úr herbergjagangi.
Svefnherbergi I:, Rúmgott með nýlega endurnýjuðum fataskápum. Gott skápapláss.
Svefnherbergi II: Parketlagt. Gott barnaherbergi.
Svefnherbergi III: Parketlagt. Gott barnaherbergi.

Í kjallara hússins eru:
Sér geymsla: Ca 6 fermetra að stærð, flísalagt gólf og með glugga.
Sameiginlegt þvottahús:, Með glugga, steypt gólf og hver með tengi fyrir sína vél.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla:, Málað gólf og útgengið á lóð til norðurs.

Falleg og björt 4ja herbergja íbúð í afar vinsælu og fjölskylduvænu hverfi í Fossvoginum. Leik- og grunnskóli í göngufjarlægð ásamt íþróttasvæði Víkings. Stutt í einstakt útivistarsvæði í Fossvogsdalnum og Elliðaárdalnum. Frábær staðsetning miðsvæðis í Reykjavík.

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur hreidar@betristofan.is.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. okt. 2020
45.450.000 kr.
53.900.000 kr.
92 m²
585.870 kr.
3. júl. 2015
27.900.000 kr.
35.900.000 kr.
92 m²
390.217 kr.
29. maí. 2009
20.950.000 kr.
21.150.000 kr.
92 m²
229.891 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone