Erum staðsett í sýningaríbúð á 4. hæð, frítt í bílakjjalara. - verið velkomin kl. 12:00 laugardaginn 30. maí. Jason s. 7751515
Lýsing
Heimasíða Orkureitsins
Orkureitur - D2, íbúð 705 er þakíbúð 226,5 fm með 24,5 fm. bílskúr og 2 sérmerkt stæði B041 og B070. Íbúðin er við Grensásveg 4 og snýr í austurs, suðurs og vestur. Tvennar hjónasvítur eru í íbúðinni, ásamt þrennum svölum, samtals 135 fm sem snúa til suðurs og austurs.
Flæði íbúðar:
Komið inní anddyri
Gott skápapláss er á ganginum.
Hjónasvíta 1: Fataherbergi, baðherbergi með baðkari.
Hjónasvíta 2: með fataherbergi og sér baðherbergi með sturtu.
Sérþvottahús íbúðar með góðri innréttingu.
Góð stofa og alrými með útsýni
Eldhúsið er með stein á borðplötum. Glæsileg innrétting frá GKS með eyju. Safír Premium.
Alrými tengir saman eldhús, borðstofu og stofu og er með gólfsíðum gluggum til suðurs, vesturs og austurs og fallegu útsýni. úr alrými er gengið út á 118,9 fm þaksvalir til suðurs með heitum potti.
Gólfsíðir gluggar og gólfhit ásamt loftskiptakerfi gefa aukin gæði.
Sérgeymsla íbúðar í kjallara er 14,7 fm.
Bílskúr 24,5 fm.
Innréttingaþema er Safír Premium. Steinn á borðum. Vönduð eldhústæki frá Siemens, Elica og Bora.
Nánar um Orkureitinn:
Bjartar og vel hannaðar íbúðir. Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði.
Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús. Fyrsta áfanga (A-húsi) er lokið en áformað er að allri uppbyggingu á svæðinu verði lokið í lok árs 2027.
Nánari upplýsingar veita sérfræðingar Betri Stofunnar:
Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1515 - tölvupóstur: jason@betristofan.is
Guðbjörg Guðmundsdóttir , í síma 899-5533, tölvupóstur gudbjorg@betristofan.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.