Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Halldóra Kristín Ágústsdóttir
Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1983
238,9 m²
3 herb.
Lýsing
Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- dora@eyjaeignir.is og Eyjaeignir fasteignasala kynna í almennri sölu: Vesturveg 18. Um er að ræða 238,9 m2 gisti/veitingahús ásamt 18 svefnhylkjum/gistirýmum. Eignin er í dag tvískipt, annars vegar gistirými með 18 svefnhylkjum og tveim baðherbergjum með salerni, vaski og sturtu. Hinsvegar veitingarými sem er með sæti og borð fyrir um 30 manns. Þar fyrir innan er möguleiki á að vera með fullbúið eldhús fyrir veitingarekstur, flest tæki fylgja með. Í salnum er stórt sjónvarp og veglegur bar. Að auki eru þrjú salerni, eitt þeirra er með hjólastólaaðgengi, þar er einnig rými sem áður var nýtt sem kælir , herbergi og lítið salerni. Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð undanfarin ár, má þar nefna að skipt hefur verið um gler í öllum gluggum, búið er að bæta við opnanlegum gluggum í 5 glugga, nýlegt loftræstikerfi, nýleg rafmagnstafla, búið er að auka hljóðeinangrun á milli hæða. Timbur hefur verið álklætt að utan á suður og austurhlið. Brunavarnir hafa verið uppfærðar og leyfi til rekstur liggur fyrir. Tveir inngangar og góð bílastæði. Frábær staðsetning í miðbæ Vestmannaeyja sem bíður upp á mikla möguleika.
BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið dora@eyjaeignir.is eða í síma 8611105
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Eyjaeignir fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. mar. 2021
21.800.000 kr.
19.300.000 kr.
10101 m²
1.911 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026