Lýsing
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 197,5 fm. og þar af er bílskúr 40 fm.
Nánar um eignina:
Neðri hæð skiptist í anddyri, hol, eldhús, baðherbergi, tvennar stofur, herbergi, stóran sólskála, þvottahús, geymlu og anddyri við bílskúr.
Anddyri með flísum á gólfi.
Hol með parketi á gólfi. Úr holi er stigi em liggur upp á efri hæð hússins.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, helluborð, ofn, tengi fyrir uppþvottavél og parketi á gólfi.
Stofa/borðstofa rúmgóðar með parketi á gólfi. Úr stofunni er útgengt út í stóran sólskála.
Sólskáli með parkti á gólfi. Úr sólskála er útgengt út í garð.
Baðherbergi með sturtuklefa, hvít innrétting, gluggi og flísar á veggjum og gólfi.
Þvottahús með glugga, flísum á veggjum og steinað gólf.
Geymsla/búr með stein á gólfi.
Anddyri/inngangur við bílskúr með flísum á gólfi.
Efri hæð skiptist í fjögur rúmgóð herbergi, baðherbergi og rými þar sem áður var eldhús.
Gengið er upp teppalagðan stiga úr holi.
Á efri hæð eru fjögur rúmgóð svefnherbergi í dag með parketi eða dúk.
Baðherbergi með sturtuklefa, gluggi, tengi fyrir þvottavél og flísar á veggjum og gólfi.
Áður var eldhús á efri hæðinni en er ekki í dag og því er möguleiki á að setja aftur upp eldhús eða útbúa annað herbergi.
Bílskúr er 40 fm. með nýlegri bílskúrshurð með bílskúrshurðaropnara, hiti og rafmagn og gluggar. Hurð sem opnast út í garð hússins. Hiti í stétt við bílskúr og bílaplani.
Í kringum húsið er stór lóð og er hluti garðsins girtur af. Geymsluskúr á lóð fylgir eigninni.
Þak og þakrennur endurnýjaðar vorið 2026
Klæðning á risi endurnýjuð vorið 2026.
Örstutt í leikskóla og skóla. Húsið stendur efst í botnlanga með opið svæði við garð hússins.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.