Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Arnar Birgisson
Lína Rut Olgeirsdóttir
Tryggvi Gunnarsson
Bergþóra Höskuldsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Eyrarlandsvegur 12 íbúð 201

600 Akureyri

72.900.000 kr.

458.779 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2145975

Fasteignamat

62.800.000 kr.

Brunabótamat

76.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1923
svg
158,9 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

EIGNAVER 460-6060

Eyrarlandsvegur 12, sex herbergja íbúð á lI.hæð ásamt auka íbúð í risi.

Rúmgóð sex herbergja íbúð í fallegu húsi við miðbæ Akureyrar ásamt auka, tveggja herbergja íbúð í risi.
Sérlega góð staðsetning í göngufæri við miðbæinn, Akureyrarkirkju og Sigurhæðir, skóla og sundlaugina. Fallegt útsýni.
Aðal íbúðin skiptist í þvottahús sem gengið er í af stigapalli, forstofu og herbergisgang, baðherbergi, fjögur svefnherbergi, stofu, borðstofu, eldhús og búr ásamt geymslu í séreign í kjallara.
Rúmgóðar svalir til vesturs í séreign, ásamt góðu sameignarrými í kjallara.



Nánari lýsing:
Inngangur íbúðar er að norðanverðu og þar komið inní sameiginlega forstofu, dúkur á gólfi.
Úr forstofu er gengið inn á stigagang og upp fallegan timburstiga sem er dúklagður.
Af stigapalli er gengið inn í íbúð og þar eru flísar á forstofurými. Nýlega var skipt um inngönguhurð af stigapalli og eftir er að laga flísar eftir þá aðgerð, en þær eru til og fylgja með við kaupin.
Gangur, parket á gólfi. Innst á gangi er lítið hol sem í dag er nýtt fyrir heimaskrifstofu. Þar er falskur veggur sem auðvelt er að fjarlægja og opna inn í stofu.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað að mestu flísar á gólfi, baðkar með sturtutækjum. 
Stofa og borðstofa er með parketi á gólfi. 
Eldhús, endurnýjað ca 2012, ljós viðar innrétting, parket á gólfi,  gott skápapláss. Ísskápur fylgir með við kaupin.
Búr er inn af eldhúsi, hillur og gluggi út í bakgarðinn.
Svefnherbergin eru fjögur, parket á öllum gólfum og góðir skápar í tveimur þeirra.
Þvottahús er í litlu rými innaf stigapalli. Flísar á gólfi og hluta veggja, skolvaskur.

Íbúð í risi;
Gengið inn af stigapalli, lítið hol og gangur með parketi á gólfi.
Baðherbergi, flísar á gólfi og í sturtu, rúmgott herbergi og þar væri hægt að útbúa aðstöðu fyrir þvottavél fyrir risíbúð.
Stofa, parket á gólfi, glæsilegt útsýni yfir miðbæ Akureyrar og pollinn.
Eldhús og borðsstofa, parket á gólfi og lítil eldhúsaðstaða með bekk og hillum, eldavél með ofni.
Svefnherbergi, stórt herbergi með parketi á gólfi.

Annað:
- Húsið nýlega múrviðgert og málað að utan.
- Þak endurnýjað árið 2020
- Ljósleiðari kominn í íbúð.
- Ofnar og ofnalagnir endurnýjaðar að mestu.
- Rúmgóð sameign með góðu geymslurými í sameign og einni geymslu í séreign, lökkuð gólf, hillur í séreymslu.
- Frábær staðsetning, rétt við miðbæ Akureyrar.

Íbúðin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu.

Begga           s: 845-0671     / begga@eignaver.is
Tryggvi         s: 862-7919     / tryggvi@eignaver.is
Arnar            s: 898-7011     /  arnar@eignaver.is

 

Eignaver fasteignasala ehf

Eignaver fasteignasala ehf

Hafnarstræti 97 (krónan), 600 Akureyri
phone
Eignaver fasteignasala ehf

Eignaver fasteignasala ehf

Hafnarstræti 97 (krónan), 600 Akureyri
phone