Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Vista
svg

121

svg

105  Skoðendur

svg

Skráð  29. maí. 2026

fjölbýlishús

Vesturgata 25

101 Reykjavík

61.600.000 kr.

905.882 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2001603

Fasteignamat

50.650.000 kr.

Brunabótamat

22.950.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1913
svg
68 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Eignamiðlun og Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., kynna frábærlega staðsetta tveggja herbergja íbúð á jarðhæð í fallegu húsi á Vesturgötu, nærri miðbænum. Húsið er upphaflega byggt 1913, og er eignin skráð 68 fermetrar samkvæmt fasteignamati. Aðgengi er úr íbúðinni að skjólsælum sólpalli á baklóð hússins.

Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða olafur@eignamidlun.is


Gengið er inn í íbúðina um inngang frá götu, sem íbúðin deilir með annarri íbúð. Komið er beint í stofu íbúðarinnar, sem er ágætlega rúmgóð. Úr stofu er gengið í önnur rými eignarinnar, litla geymslu, eldhús og svefnherbergi. Svefnhverbergi er rúmgott og bjart, með glugga að baklóð. Eldhús er með fallegri grárri innréttingu, ágætu vinnu- og skápaplássi, og flísum á milli skápa. Öll eldhústæki fylgja íbúðinni, þar á meðal uppþvottavél og afar vandaður ísskápur. Á gólfum í stofu, herbergi og eldhúsi eru flísar sem auðvelt er að þrífa.

Frá eldhúsi er stuttur flísalagður gangur að mjög fallegu endurgerðu baðherbergi með flísum á veggjum og gólfi, lítilli innréttingu, sturtuklefa og plássi fyrir þvottavél.
Eigandi íbúðarinnar átti áður allt húsið, og hefur húsið og íbúðin fengið mjög gott viðhald og umhirðu alla tíð.

Falleg vel staðsett íbúð, frábær fyrstu kaup .

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík