Lýsing
ÍBÚÐ MERKT 020101
EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA
Falleg og vel skipulögð tveggja herbergja, 53,2 fm. íbúð á jarðhæð. Íbúðin er með stórri timburverönd sem skjólveggir umlykja.
Húsið hefur fengið gott viðhald og íbúðin er með nýju eldhúsi (2025) og parketi (2025). Sérmerkt bílastæði á lóð.
Nánari lýsing
Rúmgott hol með fataskáp.
Eldhús er opið við stofu. Ný eldhúsinnrétting frá IKEA, efri og neðri skápar, span helluborð. Ný eldhústæki frá IKEA.
Stofa / sjónvarpstofa er björt og rúmgóð með útgengi á stóran afgirtan viðarpall með skjólveggjum.
Svefnherbergið er rúmgott með góðum fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergið var endurnýjað fyrir nokkrum árum , flísalagt í hólf og gólf. Falleg innrétting, flísalögð sturta, upphengt salerni og tengi fyrir þvottavél.
Sérgeymsla er innan íbúðarinnar. Nýtt í dag sem herbergi.
Helstu framkvæmdir
- Húsið múrviðgert og málað ( 2021-2022 )
- Skipt um glugga og gler að hluta ( 2021-2022 )
- Svalir lagaðar og skipt um klæðningu að hluta (2021-2022)
- Stigagangur málaður og teppalagður ( 2021-2022 )
- Þak yfirfarið og málað ( 2021-2022 )
- Mynddyrasímakerfi sett upp ( 2022 )
- Skipt um lýsingu í stigagangi og útiljós endurnýjuð (2024)
- Ný eldhúsinnrétting frá IKEA (2025)
- Nýtt parket frá Birgisson ehf. (2025)
- Nýjar vatnslagnir í eldhúsi (2025)
Einstaklega góð og fjölskylduvæn staðsetning á vinsælum stað í Grafarvogi í grennd við verslunar og þjónustumiðstöðina Spöngina.
Leik-, grunn- og framhaldsskóli í göngufæri ásamt íþrótta- og afþreyingamiðstöðinni í Egilshöll.
Nánari upplýsingar veita:
Kristján Þór Sveinsson, löggiltur fasteignasali, s: 898-6822 / kristjan@helgafellfasteignasala.is
Knútur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s: 775-5800 / knutur@helgafellfasteignasala.is
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.