Opið hús: Engjavellir 3, 221 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 3. júní 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Eignin skiptist í forstofu, rúmgott hjónaherbergi, tvö góð barnaherbergi, eldhús, stofu, borðstofu, baðherbergi, þvottahús og geymslu innan íbúðar. Útgengt út á stórar svalir úr borðstofu.
Nánari lýsing:
Komið inn í flísalagt anddyri með góðu skápaplássi.
Gangur með parketi á gólfi.
Rúmgott hjónaherbergi með parketi á gólfi, gott skápapláss.
Tvö rúmgóð barnaherbergi með parketi og fataskápum.
Eldhús með góðu skápaplássi og fallegri eyju með morgunverðaborði úr graníti. Ofn í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél, helluborð og háfur.
Opið úr eldhúsi í rúmgóða stofu og borðstofu með parketi á gólfi. Stofan og eldhúsið myndar skemmtileg, stórt og bjart fjölskyldurými.
Útgengi úr eldhúsi á 10 fm svalir sem snúa til vesturs.
Baðherbergi með flísum í hólf og gólf, sturtubaðkar og góð baðinnrétting með vaski. Upphengt wc og handklæðaofn.
Þvotthús innan eignar með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara og góðu skápaplássi,flísar á gólfi.
Inn af þvottahúsi er svo geymsla.
Sameiginleg vagna og hjólageymsla.
Góð og vel skipulögð 4 herbergja fjölskylduíbúð á Völlunum í Hafnafirði í grend við leik- og grunnskóla ásamt íþróttasvæði Hauka að Ásvöllum ásamt allri annari helstu þjónustu eins og matvöruverlsun (Bónus, Krónan, Nettó), apótek, sundlaug, líkamsrækt og fl.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður