Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Vera Sigurðardóttir
Sjöfn Hilmarsdóttir
Vala Georgsdóttir
Upplýsingar
svg
Byggt 2000
svg
209,7 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
Opið hús: 4. júní 2026 kl. 17:15 til 17:45

Opið hús: Blikaás 18, 221 Hafnarfjörður.. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 4. júní 2026 milli kl. 17:15 og kl. 17:45.

Lýsing

Domusnova fasteignasala hefur fengið til einkasölu gott parhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr við Blikaás í Hafnarfirði. Eignin er í botnlanga í fjölskylduvænu hverfi . Birt stærð er 209,7 fm og er bílskúrinn þar af 23,6 fm. Húsið er allt mjög rúmgott. Gott hellulagt bílaplan fyrir framan hús. Fjögur svefnherbergi og rúmgóð stofa/borðstofa með útgengi í garð. Svalir með góðu útsýni.

Á neðri hæði er forstofa, þvottahús, gestasnyrting, eldhús, búr, stofa/borðstofa og tvær geymslur, innangengt er í innbyggðan bílskúr.
Á efri hæð eru fjögur svefnherbergi, öll með fataskáp, baðherbergi, sjónvarpshol og útgengt á svalir.

Neðri hæð:
Rúmgóð forstofa með skáp.
Gestasnyrting með glugga.
Eldhús með viðarinnréttingu og borðkrók, sem er opinn inn í stofuna.
Innaf eldhúsinu er gott búr með glugga og hillum.
Rúmgóð stofa/borðstofa með dyr út í garðinn og hellulagða verönd.
Rúmgott þvottahús með glugga og innréttingum.
Gengið er úr geymslu inn í innbyggðan bílskúr.
Flísar eru í öllum rýmum. 
Tréstigi er á milli hæða og er geymsla undir honum að hluta.
Efri hæð:
Mjög rúmgóð 4 svefnherbergi og eru öll með fataskápum, viðarparket á allri hæðinni nema á baðherbergi sem er mjög rúmgott og er það flísalagt, baðkar og sturtuhaus. Rúmgott sjónvarpshol með útgengi á svalir með góðu útsýni.

Bílskúr er innbyggður með rafmagnsopnun, stærð 23,6fm, steingólf. 
Lóðin er með hellulagðri verönd og hellulagt bílaplan fyrir framan húsið með hitalögn.  
Gott skipulag er í húsinu og nýtast rýmin vel, öll herbergi eru rúmgóð. Ágætis útsýni er frá svölum á efri hæð. Eignin er í lokuðum botnlanga, og er aldeilis frábært fjölskylduhús. Um er að ræða timburhús.
Á undanförnum árum hefur bílaplan að framan verið hellulagt og hitalögn lögð í það, skipt hefur verið um svalahurðir bæði á neðri og efri hæð og þakpappa á svölum. 

Nánari upplýsingar veita:
Árni Helgason löggiltur fasteignasali / s.663 4290 / arni@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  • Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  • Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
  • Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  • Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  • Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
  • img
    Árni Helgason
    Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
    Domusnova fasteignasala
    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone
    img

    Árni Helgason

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone

    Árni Helgason

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur