Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þórólfsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Jason Kristinn Ólafsson
Sverrir Pálmason
Vista
fjölbýlishús

Grundarstígur 11

101 Reykjavík

56.500.000 kr.

1.247.241 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2006978

Fasteignamat

50.550.000 kr.

Brunabótamat

27.750.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1919
svg
45,3 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Hreiðar Levý löggiltur fasteignasali og Aron Bjarnason nemi til löggildingar fasteignasala hjá Betri Stofunni fasteignasölu kynna:

Fallega, bjarta og mikið uppgerða 2ja herbegja íbúð í miðbæ Reykjavíkur, samtals 45,3 fm. Íbúðin er á 3. hæð í fallegu steinsteypu húsi að Grundarstíg 11. Eignin var öll standsett fyrir fáeinum árum á smekklegan máta þar sem eldhús, bað og gólfefni var endurnýjað.
Íbúðin er afar vel skipulögð með aukinni lofthæð og skiptist í gang sem tengi saman öll rými íbúðar, opið, bjart og fallegt alrými með samliggjandi stofu og eldhúsi, rúmgóðu svefnherbergi ásamt baðherbergi með sturtu. Þá fylgir eigninni sérgeymsla í kjallara. Húsið hefur fengið gott viðhald undanfarin ár þar sem það var meðal annars skipt um glugga að hluta og endursteinað.

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý löggiltum fasteignasala í síma 661-6021 eða með tölvupósti í netfangið hreidar@betristofan.is eða hjá Aroni Bjarna nema til löggildingar fasteignasala í síma 845-8814 eða með tölvupósti í netfangið aron@betristofan.is

Húsið hefur fengið gott viðhald undanfarin ár:

2020: 
- Húsið allt múrviðgert að utan og steinað upp á nýtt.
- Gler og gluggar hússins endurnýaðir, nema í stigahúsi.
- Þakjárn, þakpappi, þakrennur og niðurföll endurnýjuð
- Skipt um útihurðir á þvottaherbergi og geymslugangi
Þar að auki voru klóaklagnir endurnýjaðar fyrir 15 árum

Nánari lýsing:
Gangur: Tengir saman öll rými íbúðar.
Alrými: Einstaklega fallegt og bjart rými með samliggjandi eldhúsi og stofu. Hátt til lofts og fallegir gluggar.
Eldhús: Endurnýjað fyrir 4 árum með fallegri innréttingu með innbyggðum ískáp, uppþvottavél, blástursofni, spanhelluborði og eldhúsvaski. Opið og samliggjandi stofu.
Stofa: Rúmgóð, falleg og björt. Opin við eldhús.
Herbergi: Rúmgott. Nýtt í dag sem fundarherbergi.
Baðherbergi: Endurnýjað á smekklegan hátt fyrir um 4 árum. Sturtuklefi, upphengt salerni, baðinnrétting með neðri skúffum, vask og spegli fyrir ofan vask. Flísar á gólfi.
Geymsla: Í kjallara hússins er 3,7 fm. sérgeymsla.
Sameign: Hjóla- og vagnageymsla. Þvotta- og þurrkherbergi með glugga. Stigahús er mjög snyrtilegt, linoleumdúklagt og nýlega málað.

Samkvæmt skráningu hjá HMS er birt flatarmál eignarinnar 45,3 fm. og þar af er sérgeymsla eignarinnar skráð 3,7 fm.

Einstaklega falleg íbúð á afar vinsælum stað í Þingholtunum með alla helstu verslun og þjónustu í stuttu göngufæri ásamt fjölbreyttri flóru kaffi- og veitingastaða, menningarhúsa og listasafna. 

Nánari upplýsingar veitir:
Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 661- 6021 eða með tölvupósti í netfangið hreidar@betristofan.is
Aron Bjarnason nemi til löggildingar fasteignasala í síma 845-8814 eða með tölvupósti í netfangið aron@betristofan.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
5. maí. 2021
29.250.000 kr.
34.000.000 kr.
45.3 m²
750.552 kr.
17. júl. 2015
16.200.000 kr.
20.900.000 kr.
45.3 m²
461.369 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone