Upplýsingar
6570 m²
1 herb.
Lýsing
LÖGMENN SUÐURLANDI S: 480 2900
Klettaás 19, 805 Grímsnes- og Grafningshreppi – Í einkasöluUm er að ræða 6.570 fm eignarlóð úr landi Búrfells í fallegu og grónu sumarhúsahverfi. Á lóðinni stendur tæplega 15 fm aðstöðuhús sem er óskráð. Húsið skiptist í eitt alrými ásamt baðherbergi og hentar vel til dvalar á meðan uppbygging fer fram á lóðinni.
Húsið er tengt 2.800 lítra rotþró og sólarsella sér um raforku fyrir húsið. Rafmagn og kalt vatn eru til staðar á lóðarmörkum.
Lóðin er mosavaxin en búið er að planta um 300 plöntum á lóðinni. Um er að ræða skipulagða sumarhúsalóð með góðum möguleikum til frekari uppbyggingar.
Samkvæmt gildandi skipulagi miðast byggingarmagn við hámarksnýtingarhlutfall 0,03. Heimilt er að byggja sumarhús ásamt allt að 25 fm aukahúsi, samkvæmt nánari skilmálum deiliskipulags.
Nánari upplýsingar veita
Sigurður Sigurðsson, löggiltur fasteignasali í síma 690-6166, sigurdur@log.is
Hallgrímur Óskarsson , löggiltur fasteignasali Skjalavinnsla í síma 845-9900, halli@log.is