Opið hús: Traðarberg 1, 221 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 01 02 02. Eignin verður sýnd mánudaginn 8. júní 2026 milli kl. 18:00 og kl. 18:30.
Lýsing
Nánari lýsing:
Forstofa er með rúmgóðum skápum og parket á gólfi.
Eldhús er með fallegri innréttingu með granítborðplötu, flísum á milli skápa og parket á gólfi.
Stofa er opin við eldhús, parket á gólfi og útgengi á svalir til suðvesturs.
Baðherbergi er með baðkari og sturtu, vegghengdu salerni og tengi fyrir þvottavél.
Svefnherbergi er með fataskáp og parket á gólfi.
Sérgeymsla er í sameign.
Endurbætur:
Þakið var alveg endurnýjað árið 2020 og í maí á þessu ári voru rennur hreinsaðar og gert við klæðningu á þaki. Húsið var nýlega málað að utan og þá var einnig stigagangurinn tekinn í gegn, málaður og skipt um öll ljós og rofa. Hleðslustöð fyrir rafbíla var sett upp fyrir tveimur árum.
Nánari upplýsingar veitir Kristín María Stefánsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 837-1177 eða í tölvupósti á kristin@trausti.is eða Katarzyna Kleinschmidt aðstoðarmaður fasteignasala í síma 774-2730 eða í tölvupósti á katarzyna@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.