Lýsing
Um er að ræða vel skipulagða 3ja herbergja íbúð sem er skráð 85,2 fm. skv. Fasteignaskrá HMS. Gengið er inn um sérinngang frá vesturhlið hússins en auk þess eru tveir aðrir inngangar á íbúðinni. Íbúðin er björt og falleg með stórum gluggum á öllum hliðum.
Nánari lýsing; Komið er inn í flísalagða forstofu með fatahengi, þar er geymslurymi undir stiga efri hæðarinnar.
Í opnu alrými er nýlegt eldhús og stofa.
Eldhúsið er með viðarlitri innréttingu, ágætu skápaplássi og vinnuplássi á bekkjum, tengi fyrir uppþvottavél.
Stofan er björt og notaleg, þar er pláss fyrir bæði setustofu og borðaðstöðu.
Tvö rúmgóð herbergi eru í íbúðinni. Annað herbergið er fallegri millihurð sem opnast inn í stofuna þannig auðveldlega er hægt að nýta það sem framhald af henni, þá eru gluggar á tvo vegu og hurð út í garðinn sem er skemmtileg tenging íbúðar vð garðinn.
Baðherbergi var glæsilega endurnýjað með gólfhita, fínni innréttingu með góðu geymsluplássi og tengi fyrir þvottavél. Þar er upphengt salerni, stór "walk-in" sturtuklefi og opnalegur gluggi.
Inn af baðherberginu er geymsla og hurð út í garðinn bakatil.
Íbúðin var nánast alveg endurnýjuð árið 2019, þar með talið innréttingar, hurðir og gólfefni.
Húsið er fallegt og reisulegt þríbýilshús, snyrtilegur garður. Íbúðin er vel skipulögð og í góðu ástandi.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasai í s. 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.