Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Upplýsingar
svg
Byggt 2018
svg
454,6 m²
svg
11 herb.
svg
4 baðherb.
svg
8 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Reykjadalur 3A - Mosfellsdalur
Um er að ræða 231,7 m2 íbúðarhús, ásamt 85,9 m2 auka íbúð/gestahús og 137 m2 bílskúr og geymsla samtals 454,6 m2. Húsið stendur á fallegri lóð
við Reykjadalsafleggjara í Mosfellsdal. Mikill trjágróður er á jörðinni - Áin Suðurá rennur með suðurlóðarmörkum. Stórt bílaplan, stórt opið bílskýli.
Hellulögð gönguleið og verönd við íbúðarhúsið.


Einnig er mögulegt að fá keypt Reykjadal 3b á sömu lóð, sjá nánar hér

Nánari lýsing:
Íbúðarhúsið er að mestu leyti fullbúið að utan sem innan. Húsið var byggt árið 2018 og er vel skipulagt þar sem hvert rými nýtist einstaklega vel. Komið er inn í
forstofu með flísum á gólfi, fataskáp og fatahengi. Inn af forstofu er þvottahús með flísum á gólfi, góðum innréttingum og sér útgengi. Einnig er snyrtilegt
gestasalerni með upphengdu salerni og fallegri innréttingu.
Alrýmið er einstaklega vel heppnað, með mikilli lofthæð, góð hljóðvist og flísar á gólfi. Þar er stórt eldhús með góðri eyju, miklu borðplássi og ríflegu
skápaplássi. Í eldhúsinu eru heimilstækin innbyggð. Stofan er rúmgóð og björt, með stórum gluggum og fallegum arni. Úr alrýminu er einnig gengið inn í
sjónvarpsherbergi. Á efri hæð er herbergi/skrifstofurými.
Á svefnherbergisgangi er gert ráð fyrir stóru hjónaherbergi með sérbaðherbergi og fataherbergi. Úr hjónaherbergi er einnig hægt að ganga út í garð. Þá eru
þrjú rúmgóð barnaherbergi með teppaflísum á gólfum og millilofti með gluggum.
Við enda svefnherbergisgangs er stórt baðherbergi með rúmgóðri sturtu og innréttingu með góðu borð- og skápaplássi. Þaðan er útgengi út í garð og á pall með heitum potti. Á
baðherberginu eru flísar á gólfum og veggjum.

Íbúðarhúsið var byggt á árunum 2018–2026. Utanhússklæðning er bandsagað, hvíttað lerki. Þak er lektað og klætt með Aluzink bárujárni. Timbur-/álgluggar
og útihurðir eru frá Velfac.
Gólfhiti er í öllum rýmum á jarðhæð og að auki eru ofnar í herbergjum neðri hæðar og undir stórum stofugluggum, allt á lokuðu kerfi. Neysluvatn er hitað með
varmaskipti. Í húsinu er loftræstikerfi frá Systemair, þar sem innblástur er í svefnherbergi og alrými en útsog frá blautrýmum.
Hljóðdeyfandi loft er í öllu alrými og tryggir mjög góða hljóðvist.

Bílskúr, aukaíbúð, geymsla og opið bílskýli voru byggð á árunum 2024–2026. Utanhússklæðning þessara bygginga er úr Viroc steinplötum. Þök eru
lektað og klædd með Aluzink bárujárni.


Bílskúr: Bílskúrinn er stór og rúmgóður, mikil lofthæð, tvær 4 m. háar innkeyrsluhurðir. Góð geymsla er tengd bílskúrnum. Að innan er bílskúrinn langt
kominn og að utan er hann klæddur að stórum hluta með Viroc-klæðningu. Til hliðar við bílskúrinn er stórt bílskýli sem rúmar auðveldlega tvo bíla. Fyrir framan
húsið er gott bílaplan sem býður einnig upp á hringakstur.

Aukaíbúð: Búið er að ganga frá rakavörn og einangrun útveggja. Allir milliveggir hafa verið reistir og einfaldaðir og eru tilbúnir fyrir lagnir. Einnig hefur verið
gengið frá einangrun milligólfs.

Eignin býður því upp á einstakt tækifæri fyrir nýja eigendur til að fullklára aukaíbúðina eftir eigin þörfum og hugmyndum.

Einstaklega falleg og gróin lóð við Reykjadalsafleggjara í Mosfellsdal, á jörðinni er mikill og fallegur trjágróður sem skapar skjólgott og notalegt umhverfi. Á
lóðinni er stórt bílaplan með góðu aðgengi, rúmgott opið bílskýli og snyrtilega frágengnar hellulagðar gönguleiðir. Við íbúðarhúsið er falleg verönd sem býður
upp á notalega dvalarstund í rólegu og fallegu umhverfi, með útsýni yfir gróður og náttúru svæðisins.
Þetta er einstök eign á eftirsóttum stað þar sem sveitasæla og nálægð við höfuðborgarsvæðið fara saman á einstaklega heillandi hátt

Verð kr. 285.000.000,- 



 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ