Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1951
91,6 m²
4 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Opið hús: 16. júní 2026
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Ásvallagata 46, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 00 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 16. júní 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Borg fasteignasala kynnir mjög fallega og mikið endurnýjaða 91,6 fm, 4ra herbergja íbúð á jarðhæð í 4-býlishúsi á eftirsóttum stað í vesturbænum. Sér inngangur. Íbúðin skiptist m.a. í tvær samliggjandi stofur og opið eldhús, tvö herbergi, eldhús, baðherbergi, gang og forstofu. Geymsla undir tröppum. Franskir gluggar eru í íbúðinni sem setja skemmtilegan svip á íbúðina. Um er að ræða eitt af þessum gömlu virðulegu húsum í vesturbænum. Nýlega standsettur fallegur garður til suðurs með hellulagðri verönd í bakgarði.
Nánari lýsing. Bjart og opið alrými þar sem eldhús og borðstofa mynda hjarta heimilisins. Eldhúsið hefur verið endurnýjað með fallegri sérsmíðaðri innréttingu í klassískum stíl, vönduðum borðplötum og góðu vinnurými. Stórir gluggar hleypa ríkulegri birtu inn í rýmið og fallegir franskir gluggar setja einstakan svip á eignina.
Tvær samliggjandi stofur skapa skemmtilega og sveigjanlega nýtingu þar sem auðvelt er að hafa bæði sjónvarpsstofu og setustofu eða nýta annað rýmið sem vinnuaðstöðu eftir þörfum. Íbúðin er einstaklega björt og rúmgóð og nýtur sín vel vegna glugga á fleiri en einni hlið.
Svefnherbergin eru tvö, bæði rúmgóð og með góðu skápaplássi. Baðherbergið hefur verið endurnýjað með stílhreinum flísum, góðri sturtuaðstöðu og fallegum innréttingum sem falla vel að heildaryfirbragði eignarinnar.
Fallegt harðparket er á meginhluta íbúðarinnar sem gefur hlýlegt yfirbragð. Innréttingar, hurðir og frágangur bera þess merki að vel hefur verið staðið að endurbótum á undanförnum árum.
Húsið sjálft er eitt af þessum klassísku og virðulegu Vesturbæjarhúsum sem njóta mikilla vinsælda. Nýlega hefur verið lagður mikill metnaður í garðinn sunnan við húsið þar sem er fallegt gróið umhverfi og stór hellulögð verönd sem nýtist vel til útiveru, grillveisla og samveru fjölskyldu og vina. Þá fylgir íbúðinni geymsla undir tröppum.
Framkvæmdir í íbúðinni:
Árið 2022: Gluggar pússaðir og málaðir.
Árið 2021: Íbúðin máluð. Nýr fataskápur í hjónaherbergi. Skóskápur og hillur settar í forstofu.
Árið 2016: Eldhúsið endurnýjað, innrétting sérsmíðuð. Baðherbergi endurnýjað. Neyslulagnir í íbúðinni endurnýjaðar. Raflagnir í íbúðinni endurnýjaðar að hluta til. Gólf í íbúðinni flotað, slétt og settur gólfhiti (gólfihiti settur í forstofu, gang, stofur, eldhús og baðherbergi). Gólfefni íbúðinni endurnýjuð.
Árið 2015: Gluggar og gler í íbúðinni endurnýjað.
Framkvæmir við húsið:
Árið 2021: Þakrennur endurnýjaðar að hluta til og hreinsaðar.
Árið 2020: Grindverk við lóðina endursteypt að hluta.
Árið 2018: Garður standsettur, jarðvegsskipti og sett torf. Bakgarður hellulagður. Nýjar hellur lagðar við inngang í húsið og umhverfis og er hiti í stétt.
Árið 2016: Sett dren (við þrjár hliðar hússins).
Um að ræða sérlega fallega eign á eftirsóttum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, útivistarsvæði, miðbæinn og allt það sem gerir Vesturbæinn að einu vinsælasta hverfi Reykjavíkur.
Nánari upplýsingar veita:
Úlfar Þór Davíðsson, löggiltur fasteignasali í síma 788 9030 eða ulfar@fastborg.is
Börkur Hrafnsson, löggiltur fasteignasali í síma 892 4944 eða borkur@fastborg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 85.000,-

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
21. sep. 2022
48.750.000 kr.
70.000.000 kr.
91.6 m²
764.192 kr.
30. sep. 2015
27.050.000 kr.
33.900.000 kr.
91.6 m²
370.087 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026