Lýsing
Sér inngangur er í íbúðina. ÍBÚÐ 201 Á EFRI HÆÐ. Íbúðin er 62,5 m², þar af geymsla 2,1 m² samkvæmt skráningu HMS.
ÍBÚÐIN VERÐUR TILBÚIN TIL AFHENDINGAR 30. júní 2026.
Skipulag íbúðar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, eitt svefnherbergi og baðherbergi.
Í sameign: Sér geymsla, hjóla- og vagnageymsla.
Nánari lýsing:
Andyri með þreföldum fataskáp.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Útgengt er frá stofu út á svalir.
Eldhús með Brúnás innréttingu, helluborð í bekk, ofn og stálvaskur með einnar handar blöndunartækjum.
Gert er ráð fyrir innbyggðri uppþvottavél í innréttingu, framhlið fylgir með, op fyrir ísskáp er 186 cm á hæð.
Svefnherbergi, sexfaldur fataskápur.
Baðherbergi með flísum á gólfi, sturta, vaskinnrétting og speglaskápur, upphengt salerni. Veggir sturtuhorns baðherbergis er flísalagt.
Inn á baðherbergi er pláss fyrir tvær vélar í innréttingu.
Sér geymsla ásamt vagna- og hjólageymslu er á neðri hæð hússins.
Flísar verða á anddyri og baðherbergi og parkett á alrými og svefnherbergi.
Veggir og loft íbúðarinnar verða máluð í hvítum lit. Reykskynjarar, slökkvitæki og læstur lyfjaskápur fylgja íbúðinni.
Fífutún 8 er sjö íbúða tvílyft hús. Útveggir eru forsteyptir. Gólfplötur eru staðsteyptar.
Þak er viðsnúið, halli að niðurföllum er mótaður í steyptri þakplötu, tvöfalt ásoðinn þakpappi, XPS plasteinangrun 240mm í tveimur lögum, fleytidúkur og þakmöl.
Útihurðar, gluggar og svalahurðar eru timbur/ál með tvöföldu K-gleri frá NorDan Ísland ehf.
Lóðin er sameiginleg 1155,0 m² leigulóð í eigu Múlaþings. Lóðin er leigð til 50 ára frá 23.10.2025, skjal nr. 446-E-001018/2025.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | byr@byrfasteignasala.is
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Drífa Einarsdóttir, hefur lokið námi til fasteignasala - drifa@byrfasteignasala.is
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala