Opið hús: Gullsmári 7, 201 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 04 03. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 18. júní 2026 milli kl. 13:30 og kl. 14:00.
Lýsing
Björt og vel skipulögð þriggja herbergja útsýnisíbúð á 4. hæð í góðu lyftuhúsi. Sér merkt bílastæði (merkt 05) í lokaðri bílageymslu og góðar yfirbyggðar svalir.
Eignin er alls 100,3 fm skv. fasteignaskrá. íbúðin getur verið laus við kaupsamning.
Nánari lýsing:
Forstofa rúmgóð með skápum.
Gangur/hol með parket á gólfi.
Stofa og borðstofa með útgengt á yfirbyggðar útsýnissvalir.
Eldhúsið með ljósri huggulegri innréttingu, parket á gólfi.
Búr/geymsla er innaf eldhúsi með góðum hillum og parket gólfi
Hjónaherbergi með parket á gólfi og skápum.
Herbergi: með parketi á gólfi og góðum skápum. rennihurð er inn í herbergi frá stofu og einfalt er að stækka stofu á kostnað auka herbergis.
Baðherbergi: veggir flísalagðir, dúkur á gólfi, innrétting og sturta. í innréttingu er gert ráð fyrir þvottavél.
Sér geymsla íbúðar er á geymslugangi í kjallara.
Sér stæði í bílakjallara merkt 05, komið er grunnkerfi fyrir hleðslustöð. Þvottaaðstaða er á tveimur stöðum í bílakjallaranum.
Hjólageymsla er í sameign hússins.
parket er á allri íbúðinni.
Sameign er snyrtileg í henni eru t.a.m. tvær lyftur og gengur önnur þeirra niður í bílageymslu.
Frá jarðhæð hússins er innangengt í félagsmiðstöð eldri borgara Gullsmára 7-9 í Kópavogi, þar er meðal annars heitur matur í hádeginu fyrir þá sem vilja. Í félagsmiðstöðinni er einnig hársnyrtistofa og fótsnyrtistofa. Á efstu hæð hússins er samkomusalur fyrir félagsstarf og fundi sem eigendur í húsinu geta leigt gegn hóflegu gjaldi.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, tengibrautir og strætó. Verslunarmiðstöðin Smáralind og Smáratorg í göngufjarlægð.
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Guðmundsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8995533, tölvupóstur gudbjorg@betristofan.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.