Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Vista
einbýlishús

SPÁNAREIGNIR - Dolores

953 Spánn - Costa Blanca

66.700.000 kr.

335.176 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2141506

Fasteignamat

0 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
199 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*RÚMGÓÐ EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ Í NOTALEGUM SPÆNSKUM BÆ* *EINKASUNDLAUG*


Falleg, rúmgóð og vel hönnuð 97 fm einbýlishús á einni hæð með lokuðum garði og einkasundlaug í Dolores, ekta spænskum bæ, um 30 mín akstur suður frá Alicante. Þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa, borðstofa og rúmgott eldhús. Verönd út frá stofu með einkasundlaug og góðar þaksvalir.

Allar upplýsingar veita:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali; GSM 00354 8932495; adalheidur@spanareignir.is, 
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali; berta@spanareignir.is: GSM 0034 615 112 869 


Nánari lýsing:
Komið er inn í opið rými þar sem er rúmgóð stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými. Svefnherbergin eru þrjú og baðherbergin tvö, þar af eitt inn af hjónasvítu. Inn af hjónasvítunni er einnig fataherbergi en innbyggðir skápar með rennihurðum eru í öðrum herbergjum. Útgengi er úr stofu og öllum svefnherbergjum út á verönd og þaðan er gengið upp á góðar þaksvalir. Bílastæði á lóð. Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun. 
Garðurinn er flísalagður að mestu með útisturtu og 20 fm einkasundlaug. Þar er gott pláss t.d. til að borða úti eða njóta sólarinnar við sundlaugarbakkann.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d.  La Marquesa og  La Finca. Fleiri góðir golfvellir eru ekki langt undan, s.s. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin og Las Colinas. Ca. 15 mín akstur er niður á ströndina í Guardamar og ca. 20-30 mín. akstur í verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.

Verð frá 459.900 evrum (ISK 66.700.000 - 1Evra=145 ISK:) + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin, samtals ca. 13%.

Afhending í desember 2026 - júní 2027.

Um Dolores:
Dolores er hefðbundinn skemmtilegur og líflegur spænskur bær með sál og sjarma, fallegu kirkjutorgi með 18. aldar kirkju og ýmsum skemmtilegum kennileitum. Þar er finna alla nauðsynlega þjónustu og afþreyingu s.s. veitingastaði, matvöruverslanir og ótal margar gönguleiðir í fjölbreytilegri náttúru. Stutt er til næstu bæja, sem eykur fjölbreytnina. Skemmtilegur götumarkaður á föstudögum með fjölbreyttu úrvali af grænmeti og ávöxtum sem ræktað er á svæðinu. Þetta er því staðsetningin fyrir þá sem vilja upplifa ekta spænskt umhverfi, en njóta þæginda og þjónustu nútímans.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum gegn aukagjaldi.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:  www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: bílastæði, sér garður, einkasundlaug, air con, þaksvalir, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Dolores,

img
Aðalheiður Karlsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Spánareignir
Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.
img

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.