Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Heiðrekur Þór Guðmundsson
Elísabet Kvaran
Karólína Íris Jónsdóttir
Vista
parhús

Kjarrmóar 25

210 Garðabær

79.900.000 kr.

942.217 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2071035

Fasteignamat

85.650.000 kr.

Brunabótamat

51.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1982
svg
84,8 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Garður
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
svg
Bílastæði
Opið hús: 20. júní 2026 kl. 14:00 til 14:30

Lýsing

Viltu kynnir vandað og fallegt 2 herbergja parhús við Kjarrmóa 25 í Garðabæ. Björt og fallegt eign með miklum karakter og möguleikum til að gera upp eftir eigin höfði.

Ekki hika við að hafa samband til að bóka skoðun. Kristján Samúelsson, löggiltur fasteignasali í 777-0191 eða kristjan@viltu.is

Samkvæmt Fasteignaskrá Íslands er parhúsið er 84,8 m2 á tveimur hæðum. Húsið skiptist í 1 svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, eldhús, stofu og opið rými á efri hæð. Að mestu upprunalegar innréttingar og parket á allri íbúðinni utan baðherbergis og forstofu sem eru flísalagðar. Vel hirtur garður til vesturs með góðum palli ásamt garði við austurenda hússins.
Stutt í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla.

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.

Nánari lýsing:

Forstofa: Er með góðum fataskáp og flísum á gólfi.
Eldhús: Er í upprunalegu ástandi og mjög vel með farið. Það er með viðarlitaða innréttingu og parket á gólfi.
Stofa/Borðstofa: Eru við hliðina á eldhúsinu í opnu og björtu rými með parket á gólfi. Þaðan er gengið út á vel hirtan garð með fallegum gróðri og góðum palli.
Hjónaherbergi: Bjart og rúmgott hjónaherbergi með stórum fataskáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf í ljósum lit. Innrétting í dökkum viðarlit. Baðkar, salerni, handlaug og 2 gluggar og þar af einn opnanlegur.
Efri hæð: Bjart opið rými með marga nýtingar möguleika. Það er gott geymslupláss undir súð. Parket á gólfi.
Eigninni fylgir bílskúrsréttur.
Það er hiti í tröppunum fyrir framan íbúðina, tengt rafmagni.

Húsið er byggt 1982 og hefur verið vel við haldið í gegnum tíðina. Húsið er á tveimur hæðum með samtals 2 íbúðum staðsett í vinsælu hverfi í Garðabænum þaðan sem stutt er í alla þjónustu, skóla, leikskóla, íþróttaiðkun, verslanir og heilsugæslu.

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Viltu fasteignir

Viltu fasteignir

phone
Viltu fasteignir

Viltu fasteignir

phone