Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Böðvar Þ. Eggertsson
Vista
fjölbýlishús

Lágaleiti 7

103 Reykjavík

99.000.000 kr.

869.183 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2366695

Fasteignamat

97.150.000 kr.

Brunabótamat

77.990.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2019
svg
113,9 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 21. júní 2026 kl. 14:00 til 14:30

Lýsing

Miklaborg kynnir: Glæsileg nýleg 113,9 fm 4ra herbergja íbúð á 2. hæð, merkt 205 ásamt stæði í bílageymslu merkt 06 B129, við Lágaleiti 7, 103 Reykjavík. Íbúðin er með stóru alrými með stofum og eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Möguleiki er að kaupa einnig stúdíóíbúð (38,8 fm) sem hefur verið samtengd íbúðinni og er notuð sem hjónasvíta. Um er að ræða nýlega íbúð í nýju íbúðarhverfi þar sem öll þjónusta er í næsta nágrenni þar á meðal Kringlan, Borgarleikhúsið, Borgarbókasafnið, heilsugæsla og margslags önnur þjónusta og verslanir. Íbúðin getur verið laus fljótlega.

Komið inn í forstofu með fataskápum og geymsluskáp. Þá tekur við rúmgóð stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými. Frá stofu eru svalir til suðurs. Eldhús er glæsilegt með dökkum innréttingum og eyjuborði. Steinn er á borðum og er helluborð inn í steinborðinu og sést ekki. Setuaðstaða er við enda eyjuborðsins. Tvískiptur ísskápur og uppþvottavél innbyggð í innréttinguna fylgja með. Á sér gangi eru síðan tvö svefnherbergi með fataskápum. Glæsilegt baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, bæði með baðkari og sturtuklefa. Góðar innréttingar eru á baðherberginu. Þvottahús er vel innréttað með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara og skolvaski í innréttingu. Gólfefni íbúðarinnar eru parket og flísar á votrýmum. Í kjallara er 9,4 fm sér geymsla og rúmgott bílastæði í sameiginlegum bílakjallara. Herbergi sem áður var í stofurými var tekið niður til stækkunar á stofurými. Þess má geta að íbúðin er á efstu hæð í þessum hluta hússins.

Í Efstaleiti, Lágaleiti og Vörðuleiti mynda misháar íbúðabyggingar hring utan um hlýlegan og skjólgóðan inngarð sem liggur vel við sólu. Inngarðurinn býður upp á skemmtilega umgjörð fyrir mannlíf þar sem börn og fullorðnir njóta sín vel. Þar er leiksvæði fyrir börnin og reiðhjólaskýli.


Hér er um að ræða fyrsta flokks eign á frábærum stað.


Allar nánari upplýsingar gefur Svan Gunnar Guðlaugsson löggitlur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is

Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. sep. 2019
59.400.000 kr.
63.500.000 kr.
113.9 m²
557.507 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík