Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurfinnsson
Loftur Erlingsson
Steindór Guðmundsson
Vista
einbýlishús

Þykkvaflöt 8

820 Eyrarbakki

95.000.000 kr.

464.775 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2341125

Fasteignamat

75.350.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2025
svg
204,4 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Hafsteinn Þorvaldsson löggiltur fasteignasali, ásamt HÚS Fasteignasölu kynna í einkasölu Þykkvaflöt 8 sem er nýtt fimm herbergja einbýlishús tilbúið til afhendingar í nýlegu íbúðahverfi á Eyrarbakka. Húsið er á tveimur hæðum, klætt að utan með svörtu bárujárni og gluggar eru hvítir í frönskum stíl. Húsið er 216,7 fm að stærð, þar af sérstæður bílskúr 42,3 fm. Lóðin er þökulögð og drenmöl í bílaplani og meðfram húsi. Hönnun hússins tekur m.a. mið af því að viðhald sé í lágmarki og innra skipulag sett upp með það að markmiði að nýta sem best stærð íbúðar. Húsið er vel staðsett, örstutt út í náttúruna og er fjaran í nokkurra mínútna göngufjarlægð. 

Nánari lýsing: Á efri hæð eru fjögur rúmgóð svefnherbergi. Flísalagt baðherbergi með "walk in" sturtu með glervegg, innréttingu, handklæðaofni, baðkari og upphengdu wc. Gangur þar sem hátt er til lofts og þakgluggi. Á allri hæðinni er vandað harðparket en á baðherbergi eru flísar. 
Neðri hæðin telur geymslu/inntaksrými með gönguhurð. Forstofa er rúmgóð með flísum á gólfi. Borðstofa- og eldhús í opnu og björtu rými. Í eldhúsi er snyrtileg innrétting með góðu skápaplássi og innbyggðum ísskáp/frysti/uppþvottavél. Borðplata með granítáferð. Flísalagt þvottahús með innréttingu sem gerir ráð fyrir þvottavél/þurrkara í vinnsluhæð. Salernisaðstaða með flísum á gólfi. Rúmgóð stofa með gönguhurð út í garð og úr henni er stigi upp á efri hæð hússins. Á neðri hæðinni er einnig vandað harðparket. Á neðri hæð er svæðaskiptur gólfhiti en á efri hæð eru ofnar.  Bílskúrsgólf verður lakkað.

Í alla staði vel skipulögð, snyrtileg og ný eign staðsett í barnvænu og töfrandi umhverfi.  
Eyrarbakki er fallegt lítið og sjarmerandi sjávarþorp á Suðurlandi, vel staðsett þar sem öll þjónusta er aðeins í 10 mín akstursfjarlægð á Selfoss og 40 mín á höfuðborgarsvæðið. Á sléttlendinu er fagurt útsýni og stutt í margar af fallegustu náttúruperlum Suðurlands s.s. Gullfoss, Geysi, Þingvelli o.fl.  
Bókið skoðun - Sýni samdægurs.  Skipti skoðuð á útsýniseign á Höfuðborgarsvæðinu.

Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is 

,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"       

                                                                                                                
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð
 

HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum