Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Maríus Sævar Pétursson
Erla María Guðmundsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Fífumói 5

260 Reykjanesbær

44.500.000 kr.

608.755 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2093189

Fasteignamat

42.550.000 kr.

Brunabótamat

39.750.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1980
svg
73,1 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Fífumóa 5C, 260 Reykjanesbæ.

Um er að ræða 73,1 fm. 3ja herbergja íbúð á góðum stað í Njarðvík, nálægt skóla, leikskóla, íþróttasvæði og allri helstu þjónustu

Nánari lýsing:

Íbúð merkt 203.
Komið er inn um anddyri með parket á gólfi.
Eldhús er rúmgott með borðkrók, góð innrétting, þar er helluborð, ofn og vifta.
Stofa/borðstofa er í opnu björtu rými með parket á gólfi, þar er útgengi út á svalir.
Svefnherbergin eru tvö talsins, bæði parketlögð.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi, snyrtileg innrétting og baðkar með sturtuhaus.
Stigagangurinn er teppalagður og snyrtilegur.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er á 1. hæð hússins og þar er einnig sérgeymsla sem fylgir íbúðinni.

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50 eða á netfanginu es@es.is og í síma 420-4050

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4%
ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr.
3.800 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar
á heimasíðum lánastofnana.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 70.000.
 

Eignamiðlun Suðurnesja

Eignamiðlun Suðurnesja

Hafnargata 50, 230 Reykjanesbæ
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
2. jún. 2020
24.900.000 kr.
18.700.000 kr.
73.1 m²
255.814 kr.
10. maí. 2016
11.500.000 kr.
12.650.000 kr.
73.1 m²
173.051 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Eignamiðlun Suðurnesja

Eignamiðlun Suðurnesja

Hafnargata 50, 230 Reykjanesbæ
phone