Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björn Þorri Viktorsson
Vista
lóð

Hraunvegur 22

851 Hella

4.500.000 kr.

Fasteignanúmer

F2342668

Fasteignamat

2.270.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
0 m²
svg
0 herb.

Lýsing

Falleg 7000 fm eignarlóð í Fjallalandi í landi Leirubakka í Landsveit.  Ath. höfum einnig til sölu lóðina nr. 24, sem er við hlið þessarar, sú lóð er einnig 7.000 fm.  Seljast saman eða í sitt hvoru lagi.

Fjallaland er fallegt skipulagt sumarhúsasvæði úr landi Leirubakka í Landsveit.  Landið er kjarri- og mosavaxið og býður upp á útivist, m.a. um merktar gönguleiðir.

Umhverfið er allt stórbrotið og fuglalífið fjölbreytt.  Einstakt útsýni til fjalla, m.a. til nokkurra af tignarlegustu fjöllum landsins, s.s. Heklu, Búrfells Bjólfsfells en einnig sést til Tindfjalla, Tindfjallajökuls og Þríhyrnings svo einhver séu nefnd.  Svæðið er í nágrenni við leiðir á hálendið, m.a. Landmannalaugar, Veiðivötn og Hrafntinnusker.  Þá er eining stutt á flesta af helstu ferðmanannastöðum á suðurlandi af svæðinu.  Ytri-Rangá, sem er ein af stærstu bergvatnsám Landsins, rennur meðfram svæðinu og afmarkar það til suðurs.

Svæðið er í ca. 80 mín akstursfjarlægð frá Reykjavík.

Leiðarlýsing: Keyrt Þjóðveg 1 frá Reykjavík, og beygt til vinstri við ÓB bensínstöð við Vegamót, vegur 26 (Landvegur), og beygt er til hægri, rétt áður en komið er á Hótel Leirubakka, þar sem er veitingaþjónusta, veislusalir, tjaldstæði, hestaleiga o.fl. o.fl.

Allar nánari upplýsingar veitir Björn Þorri Viktorsson hrl. og lgf. í síma 894-7070, eða á bjorn@midborg.is

Miðborg fasteignasala

Miðborg fasteignasala

Skipholt 50b, 105 Reykjavík
phone
Miðborg fasteignasala

Miðborg fasteignasala

Skipholt 50b, 105 Reykjavík
phone