Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Böðvar Þ. Eggertsson
Vista
fjölbýlishús

Haðarstígur 15

101 Reykjavík

145.000.000 kr.

997.249 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2007804

Fasteignamat

112.250.000 kr.

Brunabótamat

76.600.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1923
svg
145,4 m²
svg
6 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Margir inngangar

Lýsing

Miklaborg kynnir: Mikið endurnýjað, fallegt einbýlishús á frábærum stað við Haðarstíg í 101 Reykjavík. Húsið er á tveimur hæðum auk kjallara. Á aðalhæð eru forstofa, stofa og eldhús. Á annari hæð eru þrjú svefnherbergi og baðherbergi og í kjallara er þvottahús, stofa, geymsla og baðrými með baðkari. Haðarstígur er vistgata og umhverfið er heillandi og metnaður eigenda lagður í að halda húsum við í anda byggingartíma þeirra.

Nánari upplýsingar veitir: Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali: vidar@miklaborg.is, s. 6941401.

Aðalhæð: Rúmgóð forstofa með nýlegum flísum. Aðalhæðin er mikið til opið alrými með fallegri og bjartri stofu, setustofu og eldhúsi.
Stofan og borðstofa eru með fallega glugga á 3 vegu sem tryggja góða birtu inn í rýmið.
Eldhús er með nýrri danskri Kvik innréttingu og gaseldavél frá Kokku, háfur yfir henni. Innbyggður ísskápur og frystir frá Siemens. Marmari frá S.Helgason á borðum.

Fallegur viðarstigi er milli hæðanna og nýtt gegnheilt eikargólf á stofu og kjallara.

Efri hæð: Baðherbergi sem var endurnýjað á smekklegan hátt fyrir tveimur árum síðan, það er með gegnum birtu og ný uppgerðri "walk-in" sturtu.

Tvö barnaherbergi og rúmgott hjónaherbergi með útengi á suðursvalir.

Í kjallara er þvottaherbergi, geymsla, stofa auk baðrýmis við hlaðinn vegg. Baðkar þar er ótengt.

Skv. seljanda var húsið endurnýjað að innan á árunum 2014-15, m.a. voru allar vatnslangir (heitt og kalt vatn) og inntak út í götu endurnýjuð, veggir færðir til eða rými opnuð og stigi milli hæðanna sér smíðaður þannig að samræmi og flæði næðist milli allra þriggja hæðanna. Baðherbergi á efri hæð var algerlega endurnýjað (búið til) á þeim tíma. Ofnar og ofnalagnir endurnýjaðar 2024. Þá var kjallarinn dýpkaður og gólf steypt með hitalögn undir, undirstöður styrktar og grafið frá bakhlið til að koma að bakdyra inngangi.

Nánari upplýsingar veitir: Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali: vidar@miklaborg.is, s. 6941401.




img
Viðar Böðvarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Miklaborg fasteignasala
Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
img

Viðar Böðvarsson

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. mar. 2014
38.550.000 kr.
39.000.000 kr.
145.4 m²
268.226 kr.
29. nóv. 2012
32.150.000 kr.
15.650.000 kr.
145.4 m²
107.634 kr.
7. feb. 2007
28.960.000 kr.
34.500.000 kr.
145.4 m²
237.276 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík

Viðar Böðvarsson

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík