Opið hús: Skálabrekkugata 12, 806 Selfoss. Eignin verður sýnd laugardaginn 27. júní 2026 milli kl. 13:00 og kl. 13:30.
Lýsing
Glæsilegt sumarhús við Þingvallavatn – einstök staðsetning og stórkostlegt útsýni.
Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson, löggiltur fasteignasali, kynna með stolti til sölu þetta glæsilega sumarhús við Skálabrekkugötu 12 í landi Skálabrekku í Þingvallasveit, aðeins um 30 mínútna akstur frá Reykjavík.
Hér er um að ræða einstaklega vandaða eign á 8.200 fm eignarlóð með stórbrotnu útsýni yfir Þingvallavatn, Nesjavelli og Hengil. Úr björtu alrými hússins njóta gólfsíðir gluggar sín til fulls og færa náttúruna beint inn í rýmið.
Sumarhúsið er skráð 139,9 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands og fyrir liggur byggingarleyfi fyrir 25,7 fm gestahúsi eða geymslu.
Þingvallavatn er í aðeins um þriggja mínútna göngufjarlægð frá húsinu. Eigendur á svæðinu hafa sameiginlegan aðgang að langri sandströnd við vatnið og lóðinni fylgir réttur til vatnssetningar á einum báti. Einnig fylgir veiðiréttur fyrir a.m.k. eina stöng í Þingvallavatni gegn greiðslu árlegs gjalds samkvæmt gjaldskrá Veiðifélags Þingvallavatns.
Helstu kostir:
Einstakt útsýni yfir Þingvallavatn, Nesjavelli og Hengil
Aðeins um 30 mínútur frá Reykjavík
139,9 fm glæsilegt sumarhús
8.200 fm eignarlóð
Byggingarleyfi fyrir 25,7 fm gestahúsi/geymslu
Réttur til vatnssetningar báts
Veiðiréttur í Þingvallavatni
Gólfhiti í öllu húsinu
Vandaðar HTH innréttingar og steinborðplötur frá Steinsmiðjunni Rein
Nánari lýsing
Anddyri
Rúmgott með fataskáp og flísum á gólfi.
Stofa og borðstofa
Bjart og opið alrými með gluggum í tvær áttir. Flísalagt gólf og stór rennihurð sem opnast út í garð. Stórkostlegt útsýni til vesturs og suðurs.
Eldhús
Sérsmíðuð HTH innrétting með eyju. Steinborðplötur frá Steinsmiðjunni Rein, gashelluborð í eyju og ofn í vinnuhæð. Eldhúsið tengist stofu og borðstofu á fallegan hátt.
Baðherbergi
Falleg HTH innrétting úr dökkum við, steinvaskur og steinborðplata frá Steinsmiðjunni Rein. Flísalagt gólf og veggir, sturta og upphengt salerni.
Hjónasvíta
Rúmgott herbergi með miklu skápaplássi og sér baðherbergi. HTH skápar, flísalögð gólf og baðherbergi með sturtu, steinvaski og steinborðplötu.
Svefnherbergi I
Rúmgott með stórum fataskápum.
Svefnherbergi II
Rúmgott með fataskáp.
Frekari upplýsingar
Húsið er ekki að fullu frágengið og eftir eru minniháttar lagfæringar innanhúss. Lóðin hefur verið grófjöfnuð og eftir er að byggja pall í kringum húsið.
Á svæðinu er starfandi félag húseigenda og verður nýr eigandi sjálfkrafa aðili að því.
Þetta er sannkölluð perla fyrir þá sem vilja njóta kyrrðar, náttúrufegurðar og útivistar allt árið um kring, án þess að vera langt frá þjónustu höfuðborgarsvæðisins.
Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða á tölvupóstfangið hallgrimur@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.