Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Stefán Ólafsson
Friðrik Halldór Brynjólfsson
Vista
parhús

Brekkubyggð 1

210 Garðabær

89.500.000 kr.

937.173 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2069453

Fasteignamat

89.000.000 kr.

Brunabótamat

54.160.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1979
svg
95,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

DOMUS fasteignasala kynnir til sölu Brekkubyggð 1 - 210 Garðabæ.

Smelltu hér til að skoða kynningarmyndband um eignina

Um er að ræða 95,5 fm parhús á einni hæð ásamt bílskúr. Íbúð er 76,2 fm og bílskúr 19,3 fm. Húsið er steinsteypt frá árinu 1979 og hefur verið í eigu sömu fjölskyldu síðan 1981

Húsið stendur á leigulóð sem er samtals 3.814 fm að stærð og stór og gróinn garður er við húsið. 

Nýlegar endurbætur: 
-Eldhús var gert upp árið 2023
-Skipt um alla rafmagnstengla
-Baðherbergi var endurnýjað árið 2024
-Parket var endurnýjað árið 2023 - vínylparket
-Forstofa flísalögð árið 2023
-Flísar úr Birgisson.

Nánari lýsing: 
Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu með stórum fataskáp með speglum. Á vinstri hönd er geymsla sem hefur verið nýtt sem svefnherbergi. 
Eldhús er með parketi á gólfi og fallegri nýlegri hvítri eldhúsinnréttingu. Nýlegur tvöfaldur ísskápur með klakavél fylgir með í kaupunum. 
Stofa er rúmgóð með parketi á gólfi og útgengt er úr stofu á sólpall og út í garð bakatil. 
Baðherbergi er rúmgott með walk-in sturtu, upphengdu salerni og fallegri innréttingu og stórum spegli með ljósi. Tengi fyrir þvottavél er á baðherbergi.
Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og stórum fataskáp. 
Geymsla/herbergi er með parketi á gólfi og litlum glugga. Hefur verið notað sem svefnherbergi. 
Bílskúr er 19,3 fm með steyptu gólfi og vinnuborði. Bílskúr er upphitaður. Rafdrifin bílskúrshurð.
Garður er stór og gróinn með sólpalli sem snýr í suður. 

Um er að ræða góða eign á rólegum og vinsælum stað þar sem stutt er í alla þjónustu. 

Upplýsingar veita Friðrik Halldór Brynjólfsson löggiltur fasteignasali s 662-8034 domus@domus.is,  Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 891-9425 sol@domus.is og Sigurður Pétur Stefánsson s 698-6971 siggi@domus.is

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Domus Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 71.920 kr.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.


 

img
Friðrik Halldór Brynjólfsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Domus Fasteignasala
Þverbraut 1, 540 Blönduósi
Domus Fasteignasala

Domus Fasteignasala

Þverbraut 1, 540 Blönduósi
phone
img

Friðrik Halldór Brynjólfsson

Þverbraut 1, 540 Blönduósi
Domus Fasteignasala

Domus Fasteignasala

Þverbraut 1, 540 Blönduósi
phone

Friðrik Halldór Brynjólfsson

Þverbraut 1, 540 Blönduósi