Lýsing
Á fyrstu hæð er sérinngangur, forstofa, stigagangur, stofa og borðstofa, forstofugangur að aftanverðu, eldhús, baðherbergi og stórt herbergi í viðbyggingu. Á annarri hæð er stigapallur og fjögur herbergi. Kjallari er hrár að innan, með sér inngangi með möguleika á að útbúa þar séríbúð.
Nánari lýsing:
Fyrsta hæð:
Aðalinngangur á miðhæð, ný útihurð, þar er forstofa og gangur.
Rúmgóð stofa og borðstofa með parketi á gólfi.
Eldhús með eldri innréttingu, dúkur á gólfi, eldavél.
Forstofugangur að aftanverðu, ný útihurð þar.
Fallegt baðherbergi með baðkari með sturtu, fibo plötur við baðkar og fallegur dúkur á gólfi.
Stórt opið herbergi í viðbyggingu, þarf að gera upp en gefur marga möguleika á stækkun og breytingum. Þar er tengi fyrir þvottavél.
Önnur hæð:
Stigapallur með parketi á gólfi.
Fjögur herbergi á hæðinni.
Herbergi 1 er rúmgott með parketi á gólfi.
Herbergi 2 er einnig rúmgott með parketi á gólfi.
Herbergi 3 er með dúk á gólfi, nýtt sem gestaherbergi í dag.
Herbergi 4 með dúk á gólfi, nýtt sem fataherbergi í dag, innrétting/hillur fylgja með.
.
Kjallari:
Kjallari er tvískiptur, heildarstærð er um 72,5 m². Kjallari er hrár og óinnréttaður, loft milli hæða eru einangruð og búið að setja nýja glugga. Gott tækifæri til að útbúa séríbúð. Það er sérinngangur á austurhlið með nýrri útihurð.
Framkvæmdasaga seljanda:
Baðherbergi er gert upp árið 2016. Húsið drenað árið 2019. Þak endurnýjað 2020. Tveim gluggum bætt við á vesturgafl 2021. Gluggar í kjalla endurnýjaðir 2021. Rúður í gluggum að mestu leyti endurnýjaðar á árunum 2022-2024. Ný rafmagnstafla sett upp árið 2022. Grunnur múraður og tröppur lagaðar á árunum 2024-2026.
Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is
Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.