Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Urriðaholtsstræti 13

210 Garðabær

224.900.000 kr.

1.168.919 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2534823

Fasteignamat

106.100.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2025
svg
192,4 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Nýleg og einstaklega glæsileg þakíbúð á 5. og efstu hæð við Urriðaholtsstræti 13 í Urriðaholti, 210 Garðabæ með mikilli lofthæð. Húsið er eingöngu fyrir 50 ára og eldri. Um er að ræða 192,40 fm 4 herbergja íbúð með þremur rúmgóðum svefnherbergjum, þar af einni hjónasvítu með bað- og fataherbergi inn af. Mjög rúmgott rúmlega 80 fm alrými með stofum og eldhúsi. Gluggar á þrjá vegu. Úr alrými og hjónasvítu er gengið inn á 46 fm þaksvalir. Baðherbergi og þvottahús. Glæsilegt útsýni að Heiðmörk. Verktaki er ÞG Verk sem hafa yfir 25 ára reynslu á byggingarmarkaði. Eikarhurðir eru í allri íbúðinni.

Íbúðin er vel búin með sérsmíðaðar innréttingar frá GKS. Eldhúseyja var stækkuð af núverandi eigendum auk þess sem veglegar steinplötur voru settar í borð. Einnig var bættur við tækjaskápur í eldhús. Ofn, spanhelluborð ásamt innbyggðum kæliskáp og uppþvottavél fylgir. Eikarparket frá Parka er á allri íbúðinni fyrir utan votrými en þar eru flísar.

Gengið er inn í rúmgóða forstofu með fataskápum frá GKS. Mikið skápapláss. 
Herbergi I er á hægri hönd frá forstofu. Herbergið er með fataskáp.
Á vinstri hönd frá forstofu er þvottahús með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Gott vinnu- og skápapláss. Flísar á gólfi.
Mjög rúmgott alrými með glæsilegu útsýni í þrjár áttir. Í alrými er auðvelt að hafa setustofu, borðstofu og sjónvarpsstofu. Þar að auki er alrými opið við eldhús.
Rúmgott eldhús með vandaðri innréttingu frá GKS. Stór eyja með miklu skápa- og vinnuplássi. Hægt er að sitja við eyju. Vönduð heimilistæki, þar af innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Bakaraofn og helluborð með innbyggðum gufugleypi. Steinn á borðum frá steinsmiðju Rein. Tækjaskápur.
Úr stofu er útgengt á 46 fm þaksvalir til vesturs með glæsilegu útsýni.
Baðherbergi I er rúmgott með vandaðri innréttingu frá GKS. Steinn á borði. Vegghengt salerni. Baðkar með sturtuaðstöðu.
Herbergi II er rúmgott og með fataskápum.
Hjónasvíta (herbergi III) er einstaklega rúmgóð en hún er einnig með fataherbergi og baðherbergi inn af. Fataherbergið er með mjög miklu geymsluplássi. Baðherbergið er snyrtilegt með vegghengdu salerni og „walk in“-sturtu. Úr hjónasvítu er einnig útgengt á þaksvalir.
Tvö bílastæði fylgja eigninni sem eru hlið við hlið. Við bílastæðin er gengið inn í rúmgóða 16,5 fm geymslu.

Glæsileg sameign (miðrými) er í húsunum með útsýni að Heiðmörk. Miðrýmið er með tveimur golfhermum, billiard-aðstöðu, æfingasal og hlýlegri setustofu sem er hentug fyrir afslöppun, fundi eða óformlega samveru. Einnig verður eldhúsinnrétting, borð og stólar fyrir veislur, spilakvöld eða annað þvíumlíkt þar sem notalegt andrúmsloft ræður ríkjum. Auk þess er þvottaaðstaða fyrir bifreiðar í bílakjallara fyrir íbúa.

Húsin eru vel staðsett steinsnar frá Heiðmörk. Einn besti golfvöllur landsins (Oddur) er í göngufæri og sömuleiðis útivistarsvæðin í Heiðmörk, Vífilstaðahrauni og við Urriðavatn. Efst á Háholti er gert ráð fyrir blandaðri byggð íbúða og þjónustu, s.s. verslun, heilsugæslu, skólum og íþróttamannvirkjum.

Nánari upplýsingar veita:
Kjartan Hallgeirsson, löggiltur fasteignasali, í s:824-9093 eða kjartan@eignamidlun.is
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í s:867-0968 eða unnar@eignamidlun.is

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

img
Kjartan Hallgeirsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Eignamiðlun
Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
img

Kjartan Hallgeirsson

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. maí. 2025
11.900.000 kr.
174.382.000 kr.
30502 m²
5.717 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík

Kjartan Hallgeirsson

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík