Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Upplýsingar
svg
Byggt 2025
svg
209 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Sýnum samdægurs - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Nýtt og glæsilegt 209,0 m2 parhús á tveimur hæðum með bílskúr í byggingu við Úugötu 72 í Mosfellsbæ. Birt stærð eignarinnar er 209,0 m2, þar af er íbúðarhluti 181,1 m2 og innbyggður bílskúr 27,9 m2. Á jarðhæð er forstofa, bílskúr, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi og geymsla. Á efri hæðinni er hjónaherbergi með sér bað- og fataherbergi, sjónvarpshol (auðvelt að breyta í svefnherbergi), eldhús, stofa og borðstofa. Svalir í suðurátt. Einstakt útsýni er af efri hæðinni og frá svölum til fjalla, Helgafellið, Bláfjöllin, Úlfarsfellið og út á Faxaflóann. Húsið er teiknað af Sigurði Hallgrímssyni arkitekt. Við hönnun hússins var hugsað til þess að eignin myndi uppfylla nútímaþarfir kaupenda, hvað varðar innra skipulag, frágang á lóð við afhendingu og lágmarksviðhald til framtíðar fyrir kaupendur. Eignin afhendist samkvæmt skilalýsingu seljanda tilbúin til innréttinga á byggingarstigi B3. Til viðbótar er búið að draga víra í allar raflagnir innanhúss ásamt því að lóð er fullfrágengin.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.


Verð kr. 145.000.000,-

Skilalýsing seljanda: 
Almennt: Úugata 72-74 er staðsteypt 208 fermetra parhús á tveimur hæðum og er parhúsið vel staðsett, innarlega í Helgafellslandinu í Mosfellbæ. Helgafellslandið er nánast fullbyggt hverfi þar sem allir innviðir eru tilbúnir og rótgrónir, svo sem skólar, leikskólar, samgöngur o.s.frv. Parhúsið stendur í suðurhlíðum Mosfellsbæjar, sem gerir það að verkum að sól og birta umleikur húsið og umhverfi þess allan daginn. Það er stórkostlegt útsýni á efri hæð hússins og ekkert sem skyggir á sýn yfir Helgafellið, Bláfjöllin, Úlfarsfellið og út á Faxaflóann. Parhúsið er teiknað af Sigurði Hallgrímssyni arkitekt. Við hönnun hússins var hugsað til þess að eignin myndi uppfylla nútímaþarfir kaupenda, hvað varðar innra skipulag, frágang á lóð við afhendingu og lágmarksviðhald til framtíðar fyrir kaupendur.

Lýsing: Gengið er inn í forstofu af bílaplani á neðri hæð hússins og einnig er innangengt úr bílskúr inn í forstofu. Á neðri hæðinni eru þrjú rúmgóð barnaherbergi ásamt baðherbergi og þvottahúsi. Á neðri hæðinni er einnig gott aðgengi út á tvo sólpalla. Annar sólpallurinn er bakatil við húsið en hinn sólpallurinn snýr í suður. Á efri hæð hússins er hjónaherbergi með innangengu baðherbergi og fataherbergi, rúmgóð stofa með stórum gluggum og miklu útsýni, eldhús og sjónvarpshol. Hægt er að breyta sjónvarpsholi í fjórða barnaherbergið án mikillar fyrirhafnar sé þess þörf (sjá teikningu). Á efri hæðinni er gengið út á svalir sem snúa til suðurs.

Uppbygging húsanna: Þegar húsin voru hönnuð var ákveðið að byggja þau með þeim aðferðum sem reynst hafa vel á Íslandi og standast íslenska veðráttu. Eingöngu er notast við byggingarefni og byggingaraðferðir sem byggingariðnaðurinn hefur langa og góða reynslu af á Íslandi. Það má því segja að grunnuppbyggingin húsanna sé með gamla laginu en að sjálfsögðu er notast við þær nýjungar í byggingariðnaðinum sem reynst hafa vel við íslenskar aðstæður sl. árin. Húsin eru staðsteypt og pússuð og einangruð að innan. Flestir innveggir eru steyptir en aðrir veggir eru léttir gipsveggir. Að utan eru húsin steinuð með dökkum steinsalla en innfellingar eru sléttpússaðar og málaðar. Vatnsbretti eru undir öllum gluggum sem gerir það að verkum að regnvatn sem lendir á rúðum rennur ekki eftir veggjum húsanna á leið sinni til jarðar. Þakkantur er úr 2mm lituðu áli og niðurföll eru úr heildregnum álrörum sem búið er að polýhúða í lit. Búið er að sílanbera allt húsið að utan sem tryggir góða vatnsvörn á yfirborði hússins næstu 15 árin. Gluggar eru ál/tré gluggar sem settir voru í eftir að uppsteypu lauk og var gengið mjög vandlega frá öllum þéttingum að innan sem utan. Þakið er svokallað viðsnúið þak. Uppbyggingin er á þann veg að vatnshallinn er myndaður í þakplötunni en þar á eftir eru brædd tvö lög af asfaltpappa, svo kemur 200mm roofmade einangrun, goritex dúkur og að lokum er farg lagt yfir þakið til þess að halda einangruninni niðri. Þessi þakuppbygging á „flötum þökum“er sú aðferð sem hefur gefið bestu reynsluna við íslenskar aðstæður. Þetta er mun vandaðri og dýrari frágangur en þök sem eru klædd með dúk (dúkþök). Húsin ættu því að vera viðhaldslítil að utan. Loftræstikerfi er í húsinu sem á tryggja loftskipti. Hitakefið í húsinu er gólfhiti á báðum hæðum. Lóðin er fullfrágengin með hellulögðum bílastæðum, þreföldu sorptunnuskýli, steyptum og léttum skjólveggjum og harðviðarsólpöllum. Lóðin er þökulögð en að norðanverðu er brotinn steinmulningur sem þekur yfirborð lóðar.

Kostir: Húsin eru viðhaldslítil og rúma stórar fjölskyldur. Húsin eru mjög vel skipulögð, björt og með góðu útsýni. Húsin snúa til suðurs með fullfrágenginni lóð og eru tvö bílastæði á lóð, auk bílskúrs. Húsin eru hönnuð og byggð fyrir íslenskar aðstæður og er stutt í fallega ósnortna náttúru. Þetta er kjörumhverfi fyrir kaupendur sem vilja öruggt og fallegt umhverfi fyrir fjölskyldu sína og allir innviðir eru þegar til staðar. Allir iðnaðarmenn sem komu að uppbyggingu hosanna eru menntaðir iðnaðarmenn eða iðnmeistarar og hafa að minnsta kosti 25 ára starfsreynslu við húsbyggingar á Íslandi. Byggingameistarinn er vandvirkur verktaki með yfir 35 ára reynslu af húsbyggingum á Íslandi og sá hann um flesta verkþættina sjálfur og fylgdi verkinu eftir frá upphafi til enda.

Húsin skilast á byggingarstigi þrjú sem er fullgerð bygging að utan og tilbúin til innréttinga. Til viðbótar er búið að draga víra í allar raflagnir innanhúss ásamt því að lóð er fullfrágengin.



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ