Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg 64,1 m2, 2ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og stórri timburverönd fyrir framan stofu við Hjallahlíð 25 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 64,1 m2 skiptist í forstofu, svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, þvottahús og geymslu innan íbúðar. Frábært staðsetning stutt er í Lágafellsskóla, leikskólann Hulduberg, glæsilega sundlaug og líkamsræktarstöð World Class. Verið er að klára að mála húsið að utan (að hluta til) og mun seljandi greiða fyrir þær framkvæmdir.
Smellið hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi.
Eldhús og stofa eru í einu björtu rými parketi á gólfi. Í eldhúsi er innrétting með ofn, helluborði, viftu og vaski. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu. Úr eldhús er gengið út á stóra timburverönd í suðurátt.
Svefnherbergi er með fataskáp og harðparketi á gólfi
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, innréttingu, sturtu, vegghengdu salerni og handklæðaofni. Inn af baðherbergi er þvottahús.
Þvottahús er með flísum á gólfi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er innan íbúðar og með parketi á gólfi.
Eigninni fylgir hlutdeild að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Verð kr. 64.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.