Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þórólfsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Jason Kristinn Ólafsson
Sverrir Pálmason
Vista
sumarhús

Álftavatn 13

805 Selfoss

74.900.000 kr.

772.165 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2232853

Fasteignamat

68.650.000 kr.

Brunabótamat

63.650.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1997
svg
97 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Jason Kristinn, sími 775 1515, og Betri Stofan kynna: Fallegt og vel staðsett 97 fm sumarhús á einstaklega grónu og friðsælu 1 hektara landi við Álftavatn 13 í Grímsnesi. Eignin er í næsta nágrenni við Álftavatn, Sogið og Öndverðarnes golfvöll og býður upp á einstaka möguleika til útivistar og afslöppunar í fallegu umhverfi.
Eignin er samtals 97 fm að stærð og samanstendur af 73,8 fm aðalhúsi, byggðu árið 1997, og 23,2 fm gestahúsi sem byggt var árið 2018.

Aðalhús
Komið er inn í forstofu og þaðan tekur við bjart og notalegt alrými með stofu og eldhúsi í opnu rými. Í húsinu eru tvö svefnherbergi, baðherbergi með sturtu og risloft með góðri svefnaðstöðu sem nýtist vel fyrir fjölskyldu og gesti.

Gestahús
Gestahúsið var byggt árið 2018 og er vel skipulagt með alrými, svefnherbergi og baðherbergi með sturtu. Húsið býður upp á góða gistiaðstöðu fyrir gesti eða stórfjölskylduna.

Lóð og útisvæði
Stór og glæsilegur pallur umlykur bæði húsin og skapar skjólsælt og aðlaðandi útivistarsvæði. Á veröndinni er heitur pottur þar sem hægt er að njóta kyrrðarinnar og fallegs umhverfis allt árið um kring.
Lóðin er einstaklega falleg, gróin og vel hirt. Á henni hefur verið gróðursett töluvert í gegnum árin sem skapar skjól og notalega stemningu. Undir veröndinni eru einnig góðar geymslur fyrir garðáhöld og annan búnað.
Landið er 10.327 m² og er heimild til að byggja annan bústað á landinu og er gert ráð fyrir honum neðar í landinu (með sér innkeyrslu).
Landanúmer: L168320

Eigninni hefur verið vel við haldið í gegnum tíðina, þó að einhverjir þættir séu komnir á tíma og bjóði upp á möguleika til endurbóta eftir óskum nýrra eigenda.

Hér er um að ræða einstaka sumarhúsaeign á eftirsóttum stað í Grímsnesi þar sem náttúra, kyrrð og fjölbreytt útivist eru allt í senn.

Bókið skoðun og nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 löggiltur fasteignasali.
jason@betristofan.is 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

img
Jason Kristinn Ólafsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Betri Stofan Fasteignasala
Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone
img

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík