Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þórólfsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Jason Kristinn Ólafsson
Sverrir Pálmason
Vista
hæð

Hávallagata 13

101 Reykjavík

134.900.000 kr.

971.202 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2003728

Fasteignamat

108.050.000 kr.

Brunabótamat

71.350.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1935
svg
138,9 m²
svg
6 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Sérinngangur
svg
Laus strax
Opið hús: 29. júní 2026 kl. 12:00 til 12:30

Bókið tíma til að skoða: jason@betristofan.is eða í síma 7751515

Lýsing

Jason Kristinn, sími 7751515 jason@betristofan.is  og Betri Stofan kynna: Fallega 6 herbergja sérhæð í þríbýlishúsi á eftirsóttum stað við Hávallagötu 13, 101 Reykjavík. Um er að ræða 139 fm íbúð með sérinngangi. Fjögur svefnherbergi, stórt og bjart alrými með 2 stofum og borðstofu, rúmgott eldhús og fallegt baðherbergi. Tvennar svalir til suðvesturs og góð dagsbirta. Útgengi eru úr svölum frá borðstofu og sjónvarpsstofu.
Einstök eign á rólegum og vinsælum stað í vesturbænum. Arkitektar hússins eru Einar Sveinsson og Sigmundur Halldórsson. Húsið er steinsteypt og er í fúnkis stíl, steinklætt með kvarts og tinnu. Hávallagata liggur efst gatna í sunnaverðri Landakotshæðinni og er húsið við Landakotstún. Hverfið er heilsteypt og rótgróið íbúða- og sendiráðshverfi. 

ATH: Eignin verður sýnd 29. júní kl.12:00

Nánari lýsing:
Gengið er inn í forstofu með forstofuherbergi sem gæti nýst sem svefnherbergi, vinnuherbergi eða gestaherbergi.
Eldhús er rúmgott með nýlegri innréttingu með marmara. Gott vinnupláss, eldunareyja með marmara og innfelldri gaseldavél. Ofn í vinnuhæð.
Stofa og borðstofa eru í björtu og opnu rými þaðan sem er utangengt á suðvestursvalir, annars vegar frá borðstofu og hins vegar frá stofu.
Baðherbergi er flísalagt með vandaðri innréttingu og innbyggðum blöndunartækjum.
Svefnherbergin eru rúmgóð með góðum skápum með lýsingu. 
Gegnheilt eikarparket er á allri íbúðinni.  Flísar eru í forstofu, á baði og í eldhúsi.
Sérgeymsla er í kjallara. Snyrtileg sameign, og sameiginleg þvottaaðstaða fyrir húsið. Epoxy á gólfi.

Stór og fallegur suðvestur garður fylgir eigninni og nýtist vel til útiveru.
Endurbætur og framkvæmdir: Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð á undanförnum árum:
2021: Skólplagnir endurnýjaðar
2022: Ný gólfefni, baðherbergi endurnýjað, nýjar vatnslagnir, innihurðir, rafmagn og tenglaefni
2023: Sprunguviðgerðir að hluta utanhúss
2024: Ný drenlögn í kringum húsið
2025: Sameign endurbætt (Epoxy sett á gang í kjallara, gang við geymslur og þvottahús)

Glæsileg og vel skipulögð eign á einum vinsælasta stað vesturbæjar Reykjavíkur. Stutt í skóla, verslanir, þjónustu og útivistarsvæði. 

Laus eftir 30. júní.

Nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

img
Jason Kristinn Ólafsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Betri Stofan Fasteignasala
Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone
img

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
1. mar. 2021
66.050.000 kr.
91.000.000 kr.
138.9 m²
655.148 kr.
11. maí. 2015
40.600.000 kr.
58.900.000 kr.
138.9 m²
424.046 kr.
6. okt. 2009
29.790.000 kr.
39.900.000 kr.
135.1 m²
295.337 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík