Lýsing
Um er að ræða 2ja herbergja íbúð á 3. hæð á eftirsóttum stað í Vesturbænun. Birt stærð eignarinnar skv. HMS er 52,1 fm og að sögn seljanda er geymslan (3-4 fm) ekki skráð í heildarfermetrana. Að sögn seljanda hefur húsið fengið venjubundið og gott viðhald í gegnum tíðina. Húsið var steypuviðgert að utan á árunum 2014 og 2015. Allir gluggar í öllu húsinu voru endurnýjaðir á suðurhlið vorið 2020, það ár var hitaveitugrind yfirfarin af pípara um haustið og skipt var um loka. Nýlegt járn á þaki (árið 2023). Snyrtileg og vel umgengin sameign - góð aðkoma.
Nánari lýsing eignar: Komið er inn í forstofu, fataskápur. Á vinstri hönd er baðherbergi með flísum á gólfi, baðkar með sturtu, neðri skápur og tengi fyrir þvottavél. Rúmgott svefnherbergi með fataskáp. Björt stofa með útgangi út á svalir. Við stofu er borðstofa / borðkrókur. Eldhús opið inn í stofu með snyrtilegri eldri innréttingu, flísar á milli efri og neðri skápa. Parket og flísar á gólfum. Eigninni fylgir sérgeymsla í sameign ásamt aðgengi að sameiginlegu þvottahús og hjóla- og vagnageymslu.
Mjög góð staðsetning og mikil þjónusta í hverfinu. Stutt í skóla og leikskóla og alla helstu verslun og þjónustu á Granda og Eiðistorgi. Íþróttasvæði KR í næsta nágrenni. Stutt í fallegar göngu- og hjólaleiðir við sjávarsíðuna.
Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@landmark.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat