Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Upplýsingar
svg
200 m²
svg
4 herb.
svg
3 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGT EINBÝLIS HÚS Í FYRSTU LÍNU VIÐ LAS COLINAS GOLFVÖLLINN. ÚTSÝNI YFIR GOLFVÖLLINN OG TIL SJÁVAR*
Einstakt  og afar glæsilegt einbýlishús á einni hæð, opið og bjart,  á einum eftirsóttasta stað Costa Blanca, á hinum margverðlaunaða Las Colinas golfvelli. Hér er um að ræða eign þar sem lúxus, næði og náttúrufegurð fara fullkomlega saman. Húsið stendur í fyrstu línu við golfvöllinn og býður upp á einstakt útsýni yfir golfvöllinn, gróið landslag og Miðjarðarhafið í fjarska.
Húsið er alls 200 m² og stendur á 732 m² einkalóð með fallega hönnuðum útisvæðum, stórum veröndum og einkasundlaug. Húsið snýr í suður, sem tryggir sól allan daginn. Einstök tenging milli innan- og útirýma.
ALLAR UPPLÝSINGAR GEFA:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is, 00354 893 2495.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is, 0034 615 112 869.


FRÁBÆRT SKIPULAG:
Björt og glæsileg stofa, borðstofa og rúmgott eldhús mynda fallegt opið alrými með stórum gluggum sem gefa einstaka birtu og stórkostlegt útsýni yfir golfvöllinn og náttúruna í kring.
Eignin býður upp á:
• 3 rúmgóð svefnherbergi
• 2 glæsileg baðherbergi + gestasnyrtigu
• Fullbúið glæsilegt eldhús
• Rúmgóða stofu og borðstofu
• Þvottahús
• Geymslu
• Innbyggða fataskápa
• Gólfhita
• Miðlæga loftkælingu og hitakerfi
• Snjallheimiliskerfi (Home Automation)
• Rafmagnsgluggahlera
• LED lýsingu
• Öryggiskerfi

ÚTISVÆÐI OG LÍFSSTÍLL:
Eignin býður upp á:
• Einkasundlaug
• Stórar sólríkar verandir
• Fallega hannaðan garð
• Einkabílastæði á lóð
• Óhindrað útsýni yfir golfvöllinn
• Sjávarútsýni
• Einstakt næði
Hér er um að ræða eign sem hentar jafnt sem glæsilegt heilsárshús, sumarhús eða fjárfestingareign á einu eftirsóttasta svæði Spánar.
EINSTÖK STAÐSETNING:
Las Colinas Golf & Country Club er eitt virtasta og margverðlaunað golfsvæði Evrópu og þekkt fyrir einstaka hönnun, öryggi og náttúrufegurð.

Svæðið býður upp á:
• Aðgangsstýrt og lokað samfélag
• 24 tíma öryggisgæslu
• Margverðlaunaðan golfvöll
• Veitingastaði og þjónustu
• Íþrótta- og líkamsræktaraðstöðu
• Göngu- og hjólaleiðir
• Einstakt náttúrulegt umhverfi
Aðeins örfáar mínútur eru í verslanir, þjónustu, veitingastaði og fallegar strendur Campoamor og La Zenia.

Verð: 1.390.000 Evrur + kostn. við kaupin, (201.500.000 ISK,  gengi 1Evra = 145ISK.)

EINSTAKT TÆKIFÆRI TIL AÐ EIGNAST EINA AF BEST STAÐSETTU GOLFVILLUNUM Á LAS COLINAS.

Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001:

✔ tryggir þekkingu
✔ öryggi
✔ reynslu

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkarwww.spanareignir.is
KOSTNAÐUR VIÐ KAUP:
• 11% IVA (spænskur söluskattur)
• ca. 3% annar kostnaður
• samtals um 13-14%
EIGINLEIKAR: einbýlishús, fyrsta lína við golfvöll, einkasundlaug, sjávarútsýni, gólfhiti, loftkæling, verandir, einkabílastæði, öryggisgæsla,
SVÆÐI: Costa Blanca, golf, Las Colinas,

img
Aðalheiður Karlsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Spánareignir
Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.
img

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.