Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Freyja Sigurðardóttir
Ágústa Hauksdóttir
Andrea Guðrún Gunnlaugsdóttir
Glódís Helgadóttir
Hlynur Halldórsson
Upplýsingar
svg
210,2 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

Hraunhamar fasteignasala kynnir: Glæsilegt og vel skipulagt  fullbúið einbýli á einni hæð, skráð 180 fm auk innbyggður bílskúr 30,2 fm. Samtals stærð því 210,2 fm við Virkisás 27 í Áslandi 4 Hafnarfirði.

Stór og fallegur pallur snýr í suð-vestur með skjólgirðingum og möguleika á heitum potti. Aðgengi/bílastæði er hellulagt með snjóbræðslu.
Rafbílahleðsla er komin upp í bílskúrnum. Húsið afhendist við kaupsamning, fullbúið með lokaúttekt og er laust til afhendingar. 


* Möguleiki á 4 svefnherbergjum.
* Stór pallur til suðurs.
* Tengimöguleiki fyrir heitum potti.
* Loftdúkur/hljóðeinagrun
* Gólfsíðir gluggar.
* Gólfhiti.
* Stórt alrými. 
* Góður innbyggður bílskúr. (epoxy á gólfum)

Eignin skiptist þannig: Rúmgóð flísalögð forstofa með skáp. Þaðan er innangengt í rúmgóðan fullbúinn bílskúrinn með epoxy gólfi. Mjög fallegt flísalagt baðherbergi með fínni sturtuaðstöðu, vönduð innrétting, upphengt salerni og handklæðaofn. Svefnálma: með tveimur rúmgóðum barnaherbergjum með skápum. Glæsilegt og bjart eldhús með vönduðum innréttingum frá HTH, steinn á borðplötum, ofnum í vinnuhæð og góðum tækjum. Glæsileg eyja með span helluborði, eyjan er klædd með steini og viði. Útgengt frá eldhúsi/stofu á stóran suður pall. Eldhúsið er opið inn í rúmgóða bjarta stofuna og borðstofuna. Rúmgott sjónvarpsherbergi sem hægt er að breyta í fjórða svefnherbergið. Þvottaherbergi með innréttingu fyrir þvottatæki ásamt annarri innréttingu með vask. Rúmgott hjónaherbergi með útengi á pall. Fataherbergi að innan ásamt baðherbergi með baði, upphengdu salerni, innréttingu með handlaug og speglaskápur. Gluggi á baði.

Frábær staðsetning í suður hlíðum Ásfjalls sem er vinsælt og fjölskylduvænt svæði með fjölbreyttum möguleikum til útivistar. 
Einstaka myndir hafa verið unnar með aðstoð gervigreindar.


Nánari uppl. gefur Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is 
og Einar Örn Ágústsson - löggiltur fasteignasali s. 888-7979 einar@hraunhamar.is  


Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
 
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.

img
Glódís Helgadóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Hraunhamar fasteignasala
Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður
Hraunhamar fasteignasala

Hraunhamar fasteignasala

Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður
img

Glódís Helgadóttir

Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður
Hraunhamar fasteignasala

Hraunhamar fasteignasala

Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður

Glódís Helgadóttir

Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður