Lýsing
Miklaborg kynnir: 136,2 fm raðhús við Sóltún 33 á Selfossi. eignin skiptist í forstofu, bílskúr, skrifstofu inn af bílskúr, geymslu, þvottahús, eldhús, stofu, borðstofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi.
Nánari upplýsingar veitir
Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 6912312 eða osa@miklaborg.is
Nánari lýsing
Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi, gengið er í bílskúr úr forstofu. Inn af bílskúr er búið að útbúa skrifstofu herbergi. Geymsla er inn af skrifstofu. Eldhús er hálf opið inn í stofu og borðstofu með ljósri innréttingu, ofni í vinnuhæð, helluborði, viftu og plássi fyrir uppþvottavél og ísskáp. Í eldhúsi er pláss fyrir lítinn borðkrók. Inn af eldhúsi er þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu með plássi fyrir þvottavél og þurrkara. Stofa og borðstofa eru rúmgóð í sama opna rými með útgengi út á góðan sólpall og garð sem snýr til suðvesturs, með heitumpott og litlum geymsluskúr. Hjónaherbergi með parketi á gólfi og góðum fataskáp. Barnaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, walk in sturtu, upphengdu salerni, handklæða ofni og góðri innréttingu með vask og speglaskáp.
Gólfefni hússins er parket nema á votrýmum þar sem eru flísar.
Nánari upplýsingar gefur
Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 6912312 eða osa@miklaborg.is