Opið hús: Fannahvarf 3, 203 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 02 04. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 7. júlí 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Rafhleðslustöðvar frá ON við bílastæði hússins fyrir íbúðirnar, klætt með fallegri viðar- og álklæðningu að utan.
Eignin skiptist forstofu, eldhús, stofu / borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsla innan íbúðar.
Lýsing eignar:
Forstofa er flísalögð með stórum fataskáp.
Stofa / borðstofa er með parketi á gólfi og útgengt út á sólríkar svalir sem snúa til suðurs.
Eldhús er parketlagt með innréttingu með góðu vinnuplássi
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með fataskáp og parket á gólfi
Svefnherbergi 1 er rúmgott með fataskáp og parket á gólfi
Svefnherbergi 2 er rúmgott með fataskáp og parket á gólfi
Baðherbergi er flísalagt með innréttingu og skápum, sturta, upphengt salerni, gluggar.
Þvottahús er flísalagt með borðplötu, tengi fyrir þvottavél / þurrkara, ágætis vinnuaðstaða.
Geymsla er fyrir innan þvottahús, mjög rúmgóð geymsla með hillum
Vagna- og hjólageymsla er sameiginleg á jarðhæð.
Sameiginlegur leikvöllur við endann á húsinu.
Hiti í stétt og að inngangi eignarinnar. Varmaskiptir var settur fyrir húsið 2025.
Bílastæði er eitt sérmerkt fyrir íbúðina, en tvö stæði eru fyrir hverja íbúð.
Stutt er í alla þjónustu og almenningssamgöngur, t.d. heilsugæslu, verslun og heilsueflingu. Leikskóli og grunnskóli í göngufæri. Nálægð í náttúruperluna Elliðavatn og Heiðmörk.
Nánari upplýsingar veitir Elísabet Guðmundsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 822-4848, tölvupóstur elisabet@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.